Gleymd þá voru gömlu lögin
Gleymd þá voru gömlu löginGrallarans og Hallgríms áraekki komnar efst á bauginnútsetningar Leifs og Smára.
Heimildir og samhengi
Í Skyggni 1, 117, úr sagnakveri Eiríks Einarssonar frá Hæli: ,,Síra Guðmundur Helgason hefur sagt mér, að á hans skólatíð hafi skólapiltar sungið allmikið, en flest hafi það verið á dönsku, er þeir létu til sín heyra. Söngkennarinn, Pétur Guðjohnsen, gekk þar á undan með góðu eftirdæmi.
Á einni skólahátíðinni, er mikið var sungið að vanda og allt á dönsku, stýrði Þórður Thoroddsen, sem nú er læknir, söngnum. Var gleðskapur mikill og ekki laust við að sumir kennararnir væru dálítið hreifir. Þar á meðal var Steingrímur Thorsteinsson. Vindur hann sér að Þórði forsöngvara og spyr hvort hann geti ekki sungið eitthvað á íslensku. En hann sinnir lítið tilmælum Steingríms og segir kæruleysislega, að hann einhvern veginn muni ekki eftir neinu á íslensku, sem hægt sé að syngja. Snýr Steingrímur þá baki að honum og segir um leið hinn reiðilegasti: ,,Þú mátt skammst þín fyrir að vera sonur hans föður þíns, bölvaður ættjarðarskíturinn þinn!" En Þórður er, eins og kunnugt er, sonur Jóns Thoroddsen, skáldsins, sem kvað meðal annars: ,,Ó, fögur er vor fósturjörð".
Í þann tíð kvað svo rammt að þessum dönskusöng, að í samkvæmi á Akureyri hafði Englendingurinn Peterson, er einu sinni var kennari við Möðruvallaskóla, spurt í ávítunartón, hvort ekkert væri til á íslensku, er syngja mætti".
Aðeins árið 1874 hafa þeir fjórir, sem vitnað er til, allir samtímis verið nemendur eða kennarar við Lærðaskólann, skv. Ísl. æviskrám.
Jón Leifs (1899-1968) hljómsetti íslensk þjóðlög og samdi tónverk byggð á þeim.
Smári Ólason (1947-2023) raddsetti íslensku gerð Passíusálmalaganna, þ.e. ,,gömlu lögin", Skálholtsútgáfan, 2015.