Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1542
1542
1542

Með bjórglas einn við bar ég sit

Lag Bjórkjallarinn

MMeð bjórglas einn við bar ég sitog bergi daginn langannei, þetta er sko ekkert vitþví Skálholtsprestinn skyldi taka fangan.Ég frétti er las, að fæddi Gunna tvöog frekar eitt í viðbót.og fyrr en varir þau eru orðin sjösvo ekki er hér vanþörf á siðbót.

Glúmur Gylfason · 1542

Heimildir og samhengi

Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548).
Hann tók biskupsvígslu af J. Bugenhagen í Vor Frue kirke í Kaupmannahöfn. En Bugenhagen var sjálfur ekki áður vígður kaþólskur prestur. Kaþólskir telja Jesú hafa ,,vígt" - kallað - Pétur postula til páfa og rekja þangað vígslurnar.
Í Svíþjóð snerust kaþólskir biskupar til breytts siðar og gerðust lútherskir. Þar hefur því vígsluröðin haldist frá Pétri postula að kaþólskri túlkun.
Íslendingur sem tók prestsvígslu í Svíþjóð varð biskup Íslands 2024. Prestsvígsla sú stenst túlkun kaþólskra á vígsluröðinni.

Íslenskar æviskrár I, 466: ,,Eysteinn Þórðarson kirkjuprestur í Skálholti og er orðinn það 1539. Í utanför Gissurar Einarssonar til vígslu (1542-3) varð heitmær hans (Guðrún Gottskálksdóttir, systir Odds lm. þýðanda Nýjatestamenntisins) þunguð af völdum séra Eysteins (þríburar sem lifðu skammt). Hann varð síðar prestur á Álftamýri, þó ekki fyrr en eftir lát Gissurar biskups 1548, og hélt það prestakall til dauðadags, 1577".
Hér er Gissur látinn frétta barnafæðinguna til Kaupmannahafnar og bregðast við með þeim hætti sem leikið er á neðanskráðri slóð:

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa) 
Biskup, Gissur Einarsson syngur Pálmi Gestsson
Tæknimaður, Jónas Björgvinsson, hljóðver.is

Úr predikun sr. Skúla Ólafssonar í Neskirkju 1. sd. eftir þrenningarhátíð 2024:
.. ... mælikvarðinn sem fólk hafði til hliðsjónar þegar páfar og kóngafólk gerðust of upptekin af sjálfum sér, söfnuðu auði og völdum, hlúðu ekki að þeim sem stóðu að jaðrinum. Þá reis kristið fólk upp og mótmælti.
Við eigum meira að segja nafn yfir það. Við köllum það siðbót. Fyrir fáeinum árum börðumst við fyrir hag hinsegin fólks innan kirkjunnar og það leiddi af sér róttæka stefnubreytingu. Allt var það grundvallað á ritningunni og hugsjónum Krists. Sennilega er það nýjasta dæmið um slíka siðbót innan kirkjunnar".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa) 

Myndir

← 1541Næstelsta mannsins starf er stríð1543 →Með orgelskrifli um Atlantshaf