,,Látið hljóma lofgjörð, þér,
Lag Nú til hvíldar halla eg mér
L,,átið hljóma lofgjörð, þér,það Lútherska eksamen:söfnuðinum syngja berog svara presti: amen!”
Heimildir og samhengi
Höfuðsmaður lætur til sín taka.
Fornbréfasafn XIV, 113: ,,Hm. Páll Stígsson færir fram á þingi skipunarbréf um það hvernig fólk eigi að haga sér við guðsþjónustugerð í kirkjunni ...skulu þá allir, utar og innar, ungir og gamlir, karlar og kvinnur, venja sig til að syngja undir og með og góðfúslega andsvara amen og annað það sem til fellur í embættinu. Allir stundi eitt meðan embættið er flutt. Syngja, þakka, biðja, heyra, læra”.
Ólafur Hjaltason, Hólabiskup, hafði árið áður látið prenta sálmakver, en 1555 kom Marteinskver Einarssonar.
Íslendingar höfðu þá afsökun að kunnu ekki lögin við sálmana, sem voru þýskir slagarar.
Kaþólska messu söng presturinn á latínu en almenningur erlendis auk þess lítt læs. Þar sáu scuola cantorum, prestar og klaustrafólk, , um latneskan messusöng sem gat verið flókinn og skrautlegur. MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Með lútherskunni og prenttækninni komu sálmabækur frá 1555 og 1589 og messubók 1594 og skyldi söfnuðurinn sjá um sönginn enda klaustrin niður lögð.
Eftir að fermningar voru lögskipaðar, 1744, skyldu prestar fylgjast með lestrarkunnáttu.
Þetta ár, 1563, lýkur kirkjþingi kaólskra í Trent(o), sem staðið hafði frá 1545 í þremur áföngum og skyldi þingið marka kaþólska siðbót sem andsvar við hreyfingu Lúthers og Kalvíns. 5 voru páfar þessi 18 ár.
Að því kom að kaþólskir tóku upp sama sið, og nú hvetja þeir til safnaðarsöngs, en víða, einkum á landsbyggðinn, eru Íslendingar ,,kaþólskari en páfinn", þegja þunnu hljóði en ráða atvinnufólk til að syngja safnaðarsálmana.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hér er prestinum hlýtt betur en Páli Stígssyni:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Um hug þjóðernissinna á 20. öld til legsteins Páls Stígssonar og flókinn feril steinsins má lesa í bók Helga Þorlákssonar, Á sögustöðum, bls. 72.