Jörmunhlaup í Jökulsá
Jörmunhlaup í Jökulsájarðargróður kafnarhreiðrum sínum flýja fráfálkar, ernir, hrafnar.
Heimildir og samhengi
Seyluannáll (ritaður ~3ur árum síðar):
,,Jökulsá í Öxarfirði hljóp fram með ógurlegum vatnagangi. Tók af alla sanda yfir undir Skinnastaði og upp undir Kelduhverfi, svo ernir, fálkar og hrafnar drápust allt í sínum hreiðrum, svo hátt gekk upp í gljúfrin.
Prestur sá er hélt Skinnastaði missti þrjú hundruð fjár."
Önnur vatnsflóð þarna, e.t.v. vegna elda í norðanverðum Vatnajökli:
1477, kennt við Kverkfjöll.
1684-1685, ,,hið stórkostlegasta jökulhlaup sem sögur fara af á þeim slóðum", Ásverjasaga Arnórs Sigurjónssonar, 310.
1711-1712 sem Árni Magnússon getur um í jarðabók sinni.
Þessi flóð breyttu til spjalla bújörðum í Kelduhverfi, t.d. Ási, og þar fyrir austan, svo sem Skinnastöðum.
Flóðið 1477 ,,tók Áshúsabakka til grunna", var endurbyggður. ,,Fyrir 1684 hefur hún (Jökulsá) runnið skammt fyrir austan Áshúsabakka ...og við bakka þess farvegar hefur bærinn (nú Bakki) verið kenndur", sem hefur - auk lands - misst þrjú atkvæði framan af nafni sínu.
Vefurlandvernd.is (opnast í nýjum flipa)
(Ásverjasaga Arnórs Sigurjónssonar, 305-306).
Mynd Mats Wibe Lund:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)