Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1945
1945
1945

Dýrt sig velur dýrið selja

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir

Lag Dvel ég í draumahöll

DDýrt sig velur dýrið seljadæl ei lundin grimmþess kvað megnug, tófan, teljafrá tveimur upp í fimm.

Innan við þrítugt og engin tönneftir í Böggu munniveðráttan þá vestfirsk, sönn.Þótt væri' ei Böðvar klunniáfram komust ekki spönnúrgri í rigningunnigatan eintómt hröngl og hrönnsvo höndla eigi kunni.

Glúmur Gylfason · 1945

Heimildir og samhengi

Elva Björg Einarsdóttir, Barðastrandarhreppur - göngubók, bls. 152: ,,Fremst í Mórudal var refabyrgi, skýli fyrir refaskyttur, og lá afi, (Böðvar Guðjónsson (1901-1990)) í Tungumúla, þar oft fyrir ref. Móðir mín sagði mér af því að eitt sinn hefði fjölskyldan öll, fimm manns, farið með afa að refabyrginu og haft með frakka og langan staf sem afi gekk jafnan við. Afi varð svo eftir, en frakkinn var settur á stafinn og heim að Tungumúla héldu þau amma (Björg Þórðardóttir (1916-1998)) og krakkarnir með stafinn. Átti þar að gabba refinn, láta hann halda að allir færu aftur til baka. Rebbi er víst gáfuð skepna sem kann að telja".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Bls. 151: ,,Hér, ofarlega í brúnum Mórudals, biðu amma mín og afi, Björg (gælunafn Bagga) og Böðvar í Tungumúla, af sér aftakaveður á leið sinni frá Bíldudal á Barðaströnd. Amma mín segir frá því, að þau hafi villst á heiðinni og það hafi ekki verið fyrr en hún þekkti stóran stein í Geldingadalnum sem þau vissu hvar þau voru stödd. Tilefni ferðarinnar var það að amma þurfti til tannlæknis á Bíldudal. Teknar voru úr henni framtennur í neðri góm og voru það síðustu tennurnar hennar. Síðar fékk hún falskar tennur, innan við þrítugt, - svona var farið að þessu í þá daga, á fimmta áratug síðust aldar. Maður getur rétt ímyndað sér að ekki hafi líðanin verið góð, erfitt að ferðast svo stuttu eftir slíka aðgerð, þó að ekki væri óveður í ofanálag. En þó að aðstæður væru erfiðar þökkuðu þau að vita af börnum sínum óhultum hjá ömmu sinni og afa á Múla, Steinunni og Þórði". (Steinunn Björg Júlíusardóttir, (1895-1984), Þórður Ólafsson 1887-1984)).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Endurminningar Kristjáns Þórðarsonar, bónda og oddvita á Breiðalæk, bróður Bjargar, ,,Sú kemur tíð", komu út 2005 og fjalla m.a. vel og fróðlega um Böðvar Guðjónsson.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Hér má í heild sinni sjá landslag Barðastrandarhrepps:
bardastrandarhreppur.netbardastrandarhreppur.net (opnast í nýjum flipa)

Í bók sinni, Einn á ferð og oftast ríðandi, bls. 205, segir Sigurður Jónsson frá Brún af hrossarekstri vestur yfir Fossheiðina.
,,Var skemmtilegt að fara um heiðina ... en svo sá suður af, niður á Hagavaðal og graslendið báðum megin við hann, Breiðafjörð og Snæfellsnessfjallgarð undir sól að sjá, hver dýrðarsjónin annarri fegurri. Ég fór af baki og lagði upp tauminn á Rauð. Hestarnir lestuðu sig niður krókótta götu vestan í Tungumúlafjalli. Lá leið mín fram hjá Tungumúla. Þar var fólk við heyskap og hefur bóndi víst séð að þessi maður fór sér rólega því hann kastaði verkfæri og gekk í veg fyrir mig og bauð mér heim upp á kaffi".
(Bóndi í Tungumúla á þessum árum var fyrrnefndur Böðvar Guðjónsson).
Það er víða fagurt, en þó mun vandfundnari sumarfegurri staður en Barðaströnd. Breiðafjörður er alla daga meðal sveitanna eins og berjaskyr meðal mata - allra sveita beztur - og þarna skartaði hann fyrir landi, blár með bleikan skeljasandinn brimbarinn og öldukrotaðan upp að grænum hörðum og þurrum börðum, sléttum".


Hér má í heild sinni sjá landslag Barðastrandarhrepps og leiðina frá Fossfirði til Tungumúla:
bardastrandarhreppur.netbardastrandarhreppur.net (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurupplifdu.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1945

  • Sjómannaskóli, skáldastreita
← 1945Sjómannaskóli, skáldastreita1946 →Landspróf miðskóla lækkar skör