Árleg töðuvallarvörn
Árleg töðuvallarvörnvar að klóra skán í törnen nú má taðið kurla í kvörnkvenmannsverk og fyrir börn.
skán: sauðatað.
Heimildir og samhengi
Ritmálssafn Orðabókar Háskólans segir orðið taðkvörn fyrst sjást á prenti 1895; þá í Fjallkonunni.
Ævisaga Helgu Sörensdóttur eftir Jón Sigurðsson frá Ystafelli, bls. 129: ,,Skömmu eftir 1890 kom nýtt áhald til notkunar við vinnslu áburðarins ofan í túnin, það var taðkvörnin. Áður höfðu áburðarhlössin verið barin með kláru, þar til áburðurinn var nægilega mulinn. Taðkvörnin var með stórum troglaga kassa á háum fótum, en í botn i kassans var trémöndull með járngöddum; gaddar voru einnig í hliðarfjölum. Kvörnin var fyllt áburði og ásnum snúið. Þetta var kallað að ,,mala" og var seinlegt verk og erfitt, en þó miklu léttara og fljótlegra en að berja. Síðan var ausið úr trogum. Slóðadráttur og breiðsla hafði tíðkast frá fornu fari á sléttum túnum. ...Taðkvörnin vann sitt verk fram yfir 1920, en mun nú mega teljast til forngripa. ...Taðkvörnin var innlend uppfinning og innlendur iðnaður, en talsvert dýr".
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Vefurrml.is (opnast í nýjum flipa)
Sá áburður sem hér er fjallað um er sauða- og hrosssatað auk kúamykju, sem fremur var brennt í hlóðaeldhúsum, sbr. nafnið ,,eldhús".
Við1937rekur skógræktarstjóri, Þröstur Eysteinsson, hvernig (eldi)viður var sóttur til uppkveikju í skógarleifarnar fram til 1950 þegar rafmagnið kom.
Taði var m.a. safnað saman úti um haga og segir Halldór Laxness frá slíkri söfnunarferð þegar hann er líklega á ellefta ári, fæddur 1902:
,,Sjaldan hef ég séð annan eins viðhafnarsvip eins og á Snata þegar ég fór með (gömlu) konunni útí móa á heiðum vordegi að gá að aukatöðum. Þau liggja eins og lakkbornir gljáfægðir smíðisgripir úr harðviði og stirnir á þau í þerrinum, mikill forlátaeldiviður. Hún bar þetta heim í svuntunni sinni. ...Hundurinn velti sér ...af velsælu yfir þessu ferðalagi. Enn finnst mér að slík ferð hafi verið einna mest þeirra ferða sem ég hef farið".
(Sjöstafakverið, bls. 15).