Jörð um sig og sólu snýst
Hljóðbrot0:00
Lag Dvel ég í draumahöll
Jörð um sig og sólu snýstsagði Koperníkusei þó talið alveg vístþví engum pólitíkusá þá kennning ennþá lístog ekki heldur páfaþví hnetti vorum hæfi sístum himingeiminn snáfa.
Heimildir og samhengi
Árið 1616, þegar til stóð að endurútgefa rit Kopernikusar frá 1543 um gang himintunglanna, ,,De revolutionibus", setti Kaþólska kirkjan það á bannlista þar til á yrðu gerðar ýmsar breytingar, m.a. þær, að jörðin væri ekki reikistjarna og að hún hreyfðist ekki. Breytingar voru ekki gerðar og bannið stóð fram á 19. öld.
Þessar upplýsingar eru teknar úr sérprentun á grein eftir Þorstein Sæmundsson um Kopernikus í Andvara 1973, þegar 500 ár voru frá því að hann fæddist í núverandi Póllandi.Skjalhalo.internet.is (opnast í nýjum flipa)