Danskurinn gerir hollenskum hrekk
Danskurinn gerir hollenskum hrekká Hofsósi að þeim læðist.Þormóður dauður og druknaður Beckdoktor Bjarni fæðist.
Heimildir og samhengi
Dönsk herskip voru oft á sveimi við Ísland þegar hlé var á bardögum við Svía. Þó ekki beinlínis til landhelgisgæslu og verndar fiskistofnum nema helst við Vestmannaeyjar þar sem kóngur rak oft sjálfur útgerð og á milli Eyja og lands bannaði Krisján IV. enskum veiðar á sínum tíma. En kaupmenn, sem keypt höfðu verslunarleyfi af kóngi, gerðu kröfu til þess að hann kæmi í veg fyrir að aðrir versluðu hér, en tókst lítt. Við sögu launverslunar komu t.d. Baskar, Þjóðverjar, Bretar og Hollendingar.
Önnur erindi áttu þessir erlendu fiskimenn á þurrt, t.d. eftir vatni og í Tálknafirði böðuðu þeir sig í heitri laug.
Væru þeir orðnir svo langsoltnir í kjötmeti að rændu búfé, þá kostaði það stundum mannslíf og fyrir kom að íslenskum börnum og unglingum væri rænt á 15. öld.
Hér voru Hollendingar á fjórum fiskiduggum svo grandalausir að þeir siglu inn á hafnir nyrðra, ein á Upsaströnd og þrjár til Hofsóss þar sem danskt herskip náði þeim. Nokkrir komust undan og var bjargað um borð í dugguna sem var á Eyjafirði.
Lést Þormóður sagnaritari Torfason, f. 1636. Hann kemur hér við sögu 1660 og 1671, sjá þar.
Sm. Benedikt Bech (Magnússon) b. Sjávarborg, Skagafirði, druknaði í Héraðsvötnum. Hann var fyrri tengdafaðir Kristrúnar Þorsteinsdóttur (1751-1821), ekkju Símonar Bech, sem hér er getið 1821.
Eftirnafnið Bech dró Benedikt af fæðingarstað sínum, Kvíabekk og það tók upp Símon, f. 1714 (Íslbók: 1717) sem talinn var sonur hans. Móðir Símonar var Lisebet, dönsk þokkafull frú, Sigurðar Bjarnasonar, prests á Kvíabekk, þau hjón 1713, hann varð úti á Lágheið 1723, hún síðar kona sr. Jóns Jónssonar í Grímsey og fórust þau á Grímseyjarsundi 1727.
Ort var:
Um hvers son hann Símon var
saman ekki mönnum bar
löngum hýrt til Lisbetar
litu fleiri en prelátar.
Fæðist Bjarni Pálsson, fyrsti landlæknir, d. 1779.
Bjarna er hér getið 1750, 1757, 1780, 1766, sjá þar.
Tilvísun: Íslenskar æviskrár, Íslendingabók, Öldin átjánda.