Til Hafnar Árni halda má

Til Hafnar Árni halda máhandrita´og bókalausÞví kóngsins hirð vill heyra og sjáhvert sé allt hans maus.

Glúmur Gylfason · 1712

Heimildir og samhengi

Auk stríðs Dana við Svía geisar taugaveiki í Kaupmannahöfn og fjárhagur ríkisins afleitur. Rifjast þá upp fyrir stjórnendum að í tíu ár hafi Árni Magnússon verið hátt launaður á Íslandi og finnst nóg komið og kalla hann utan. Fór með Hofsósskipi. Þetta má benda til þess að rétt sé til getið hér á síðunni, 1702, að jarðabókin hafi verið dúsa sem friða skyldi Árna og Pál Vídalín þegar kóngur gerði þeim þá skapraun að fara nær tillögum Lárusar Gottrup um bjargráð til Íslendinga 1702. Gottrup var annar tveggja lögmanna, hinn var nágranni hans, Páll Vídalín.
Vegna stríðsins - Norðurlandaófriðarins mikla - þorði Árni ekki að taka bækur sínar með í þetta skipti enda ekki kallað eftir þeim og vel hefðu yfirboðarar hans getað rekið upp stór augu og fundið þar skýringu á árunum tíu.
Hvergi er að sjá að danskir hafi kallað eftir jarðabók né heldur manntalinu 1703.
Frekari skýringar á þessu eru við 1701, 1702 og 1703.
(maus: gauf).

Myndir