Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1671
1671
1671

Er Þormóður svefni og sverði brá

Hljóðbrot0:00

Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

EEr Þormóður svefni og sverði brásvæsinn gerðist vandi:við dögun sást hvar dauður lá- þá dæmdur burt af landi.

Glúmur Gylfason · 1671

Heimildir og samhengi

Þormóður sagnaritari d. 1719 Torfason Erlendssonar sm. (sjá 1660, 1662) og móðurbróðir Stokkseyrar-Dísu (d. 1728) skipreika við Sámsey – fyrir norðan Fjón í beinni línu milli Vejle á Jótlandi og Kalundborg á Sjálandi - ásamt m.a., sr. Lofti Jósepssyni, sjá1670. Björguðust í land.
Af framhaldinu fer ýmsum sögum. Sú sem hér er valin er, að Þormóði hafi ekki orðið svefnsamt á gististað vegna ónæðis, sem hann,,stöðvaði" með sverði sínu, sbr. vísuna.
Þó að Loftur dræpi engan þá galt hann Þormóðar og fékk enga áheyrn hjá kóngi í 30 ár, en sneri þá aftur án þess að hafa hlotið úrskurð sinna mála. Þá gerðist það að hann fékk aftur sína fyrri stöðu sem dómkirkjuprestur í Skálholti. Var það vegna þess að eftir bóluna 1707 var prestaþurrð í landinu. Kann og að vera að fyrri galdraáburður hafi ekki haft sama gildi og 30 árum áður.
En Þormóður var gerður útlægur til Noregs, þar sem hann hafði áður búið, kvæntur ríkri ekkju á eynni Körmt. (Karmøy).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Þormóður var merkur safnari, sagnaritari og útgefandi fornrita og varð fyrirmynd Árna Magnússonar í handritasöfnun og úrvinnslu handrita og Árni fór líka að dæmi hans í hjúskaparmálum. (1670, 1719). (1598, 1644). Tilvísun: Saga Íslendinga V, 291.

Íslenskar æviskrár: ,,...Sigurður Ásgeirsson ...stúdent, fór utan með Þormóði Torfasyni og varð þá orsök þess að Þormóður varð manni að bana í Sámsey; varð ekkert úr frama Sigurðar ytra, kom til landsins 1672 ...bjó í (Trölla?)Tungu, Steingrímsfirði".

Sjá enn fremur: Óskar Halldórsson, Bókmenntir á lærdómsöld, bls. 76.
Eftirfarandi slóð kann að varpa ljósi á þátt Sigurðar þessa í atburðarásinni:
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Nú er tekist á um það hvort brú skuli koma í Kattegat á milli Sjálands og Jótlands sem færi þvert yfir Sámsey. Sjá slóðina:

Vefurstopmotorvejoversamsoe.dk (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1671

  • Að Jóni á Leirá bárust bönd
← 1671Að Jóni á Leirá bárust bönd1672 →Jón ei geti galdrað nú