Láta mega lúðubanar
Lag Jólasveinar 1 og 8
Láta mega lúðubanarloks af þeirri veiðinniveiddu líka konur, Kanar,kræktu í þær í leiðinni.
Af þeim sem hafa í kögglum kraftkræfar sögur gerumen ekki var í hávegum hafthreinlætið í verum.
(kögglar, þ.e., bein)
Heimildir og samhengi
Bændablaðið 26. apríl 2018. Guðjón Einarsson:
,,Lúðuveiðar í atvinnuskyni hér við land hófust 1884 þegar bandarískir sjómenn komu á vestfjarðamið... þeir komu á skonnortum sem notaðar voru sem móðurskip. Þar var aflinn saltaður í tunnur, en veiðarnar sjálfar, sem voru línuveiðar, voru stundaðar á smábátum, svonefndum doríum...
Fór það fyrir brjóstið á heimamönnum þegar útlendingarnir fóru að líta kvenpeninginn á staðnum hýru auga.
Nokkur börn fæddust í kjölfarið og út frá þeim er ættbogi hérlendis".
Veiðum var sjálfhætt 1898 vegna ofveiði.
Gils Guðmundsson: Frá ystu nesjum 2. útg., 1. h. bls. 90:
,,Mataræði og viðurgerningur allur á skipum þessum var miklu betri en Íslendingar áttu að venjast. Fannst þeim sem þeir sætu daglega í stórveislu.
Þrifnaður og reglusemi voru með afbrigðum á skonnortunum. Þótti Íslendingum það ólíkt svakkinu á innlendu skútunum þar sem nostursemin og snyrtimennskan voru aldrei meiri en góðu hófi gegndi og oft látið vaða á súðum hvað þrifnað snerti.
Þótti landanum það nokkuð hart fyrst í stað að mega ekki vaða um hásetaklefann slorugur upp fyrir haus og hafa ekki einu sinni leyfi til að hrækja á gólfið".
Í Skyggni 1, 140, frásögn skráð af Jóni bónda Þorsteinssyni í Holtsmúla á Landi segir frá Vigfúsi Finnssyni (1862 - 1940) ,,sem var einkennilegur í háttum og því gjarnan hafður að skotspæni. ... Hann var háseti á bátum frá Stokkseyri ... ,,hann var hræddur við að óhreinkaði föt sín, en til þess mátti hann ekki hugsa, því að hann var kattþrifinn ... það var síst að furða þótt slíkur hreinlætismaður væri ekki í hávegum hafður".
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)