Jóhannes Nordal fimbulfrost
Lag Farðu að sofa - Bj.Þ. 831
Jóhannes Nordal fimbulfrostfær með ís og salti.allan má nú kæla kost.Klífur Eldey Hjalti.
Heimildir og samhengi
Árni Óla, Strönd og Vogar, 112, segir frá frumkvöðli síldveiða til beitu um 1880, Helga Ívarssyni, Flekkuvík á Vatnsleysuströnd.
Vandi hafi verið að geyma síldina, sem veiddist aðeins á vissum árstíma. ,,En svo stofnaði Tryggvi Gunnarsson Ísfélagið við Faxaflóa 1894 og fékk Jóhannes Nordal frá Ameríku til þess að koma upp frystihúsi í Reykjavík. ...veidd síld í lagnet í Rauðarárvík og inni í Sundum handa íshúsinu”.
Ís af Tjörninni í Rvk. var eftir þetta fluttur m.a. til húsa Ísfélagsins við Faxaflóa á baklóð Hafnarstrætis 23 og Tjarnargötu 12, Tjarnarbíó, frá 1913, auk Ísbjarnarins við Skothúsveg frá 1905 og Herðubreiðar við Fríkirkjuveg, 1916, nú Listasafn Íslands.
Þórarinn Olgeirsson, Sókn á sæ og storð, bls. 38: ,,...þegar kom fram yfir jól var stundum hægt að komast í vinnu við ístöku á Tjörninni ...þegar hann var orðinn um 12 þumlungar á þykkt. Var hann þá höggvinn í stór stykki. Fyrir að draga eitt slíkt ísstykki af Tjörninni og upp í Íshúsið hjá Jóhannesi Nordal, en það var austan við Zimsensbúð, fékk maður 5 aura. En til þess að þræla 60 stykkjum heim í íshús og fá 3 krónur yfir daginn varð vinnutíminn að vera langur og hvíld helst engin". (25 aurar á tímann við útskipunarvinnu um aldamót skv. Þ.O.).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þessi, þá nýja kælitækni, kippti fótum undan sauðasölu á fæti til Breta 1896.
MyndFlickr (opnast í nýjum flipa)
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Á ofanritaðri slóð má lesa um að Tryggvi Gunnarsson lét Verslunarmannafélag Reykjavíkur, sem hann var formaður fyrir, stofna Ísfjelagið eftir að hafa kynnt sér kælitæknina á fyrirlestri C. F. Drechsel, sjóliðsforingja og ráðgjafa stjórnarinnar í slíku. Einnig hjá Ísak Jónssyni sem eins og Jóhannes Nordal hafði unnið í N-Ameríku þar sem kjöt var flutt í ís eftir járnbrautum. Tryggvi réð svo Jóhannes sem forstjóra Ísfélagsins.
Hjalti Jónsson, Eldeyjar-Hjalti (1869-1949), síðar skipstjóri í Rvk., kleif Eldey fyrstur við þriðja mann.
Sögu Eldeyjar-Hjalta ritaði Guðmundur Gíslason Hagalín.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Á neðanskráðu netfangi má sjá Ísbjörninn, ístökuhús Thors Jensen, byggt 1905 sem skrauthýsi við SV-horn Tjarnarinnar, til að vera í stíl við Tjarnargötuhús yfirstéttarinnar, er haft eftir eigandanum.
HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)
Vefurnutiminn.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Þ. Þór fjallar ítarlegar um kælitækni þessa, framkvæmd og forkólfa í Ránargulli, bls. 128.
Íshús Nordals sést í neðra horninu til hægri þegar neðanrituð slóð hefur gengið í 51 sekúndu.