Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1892
1892
1892

Móhúsaskotta og Skerflóðs Móri

Hljóðbrot0:00

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

MMóhúsaskotta og Skerflóðs Móriskelfingu valda á Eyrum.Skemmtir ýmsum að Skurður klóriSkúla og jafnvel fleirum.

Glúmur Gylfason · 1892

Heimildir og samhengi

Útróðramenn flýja verbúð á Stokkseyri sökum draugagangs (súrefnisskorts?).

Útróðramaður var vinnumaður bónda, sem gerði hann út með nesti og föt (útgerð) til þess að róa til fiskjar á vertið og afla þannig sjófangs til búsins. Bóndinn var þá útgerðarmaður sjómannsins. Vetrarvertíð var á góu og einmánuði.

Skerfóðs-Móri:
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Stokkseyrar- og Eyrabakkafjörur:
Vefurmk-mk.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

Páll Ísólfsson, í Myndir úr þjóðlífinu, bls. 195, skráð 1943:
,,Draugurinn lét ekki undan fyrr en kirkjuklukkurnar voru sóttar og þeim hringt fyrir framan búðina".
Bls. 194: ,,Heyrði ég talað um að hann (Skerflóðs-Móri) ætti til að sitja í tunglsljósi klofvega yfir plankann sem hafður var til að ganga á yfir Hraunsá. Menn sem komu að plankanum komust ekki yfir nema þeir væru svo forsjálir að þeir hefðu með sér keitukopp til að skvetta á hann".

Hólmfríður Hjaltason, skrásett af Elínborgu Lárusdóttur, Tvennir tímar, bls. 23: ,,Hjátrú var mikil í þá daga (~1880). Menn trúðu svo að segja á drauga og afturgöngur, einkum óttuðust menn skottur og móra og þó einkum Þorgeirsbola ...dræpist skepna eða yrði slys á mönnum var Þorgeirsbola jafnan kennt um”.

Grunnvíkingabók I, 72: ,,Í endurminningum húsfreyju frá Hornströndum sem birtust 1952 segir að fólk á Ströndum hafi verið mjög trúað á ýmsa yfirnáttúrlega hluti, svosem vofur, svipi dauðra manna, huldufólk og þess háttar”.
Tilfært dæmi um vinnumann á Stað sem seint um kvöld sá kirkjugarðinn fullan af fólki, þ.á.m. hávaxinn prest.

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Sigurður skurður (1891) verður sm. Skúla Thoroddsen (1891) sífellt þyngri í skauti sem og sérstökum Ísafjarðarsýslumanni, Lárusi H. Bjarnasyni (1866-1934), og áður en lýkur jafnvel landshöfðingja, Magnúsi Stephensen (1836-1917).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

(Sömu heimildir og 1891, 1895, Öldin sem leið).

Myndir

Einnig frá árinu 1892

  • Bændum þótti um Flensborg fátt:
  • Varnargarðinn Grímur hlóð
← 1891Hjá brúarsnurðum smaug sem smurður1892 →Bændum þótti um Flensborg fátt: