Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1889
1889
1889

Af klárum falla kempur

Hljóðbrot0:00

Lag Vertu hjá mér, Dísa

AAf klárum falla kempurog klerkar missa hempurer Bakkusi á hendurbiskup segir stríðhans þegnar fá að fjúkaog ferli sínum ljúkafyrr en skyldi aldurs vegnaúti þeirra tíð.

Glúmur Gylfason · 1889

Heimildir og samhengi

+ kempan Jón Sigurðsson, alþm. frá Gautlöndum, f. 1828; féll ölvaður af hestbaki á Öxnadalsheiði, festist í ístaðinu og dróst með hestinum. Hann lést að Bakkaseli fáum dögum síðar – líklega úr lungnabólgu.

Jón Borgfirðingur lýsir nafna sínum 1861 svo í Menn og minjar I, bls. 68: ,,...stór vexti og vel limaður, fallegur á fæti og eins í andliti, svart og hrokkinhærður, en hærðist um þrítugt, rómurinn hár og snjall. Hann er gáfumaður og lesinn, gestrisinn og höfðingi í lund og vænn maður, hvatlegur, hneigður til öls og nokkuð á velli við það og sést ei fyrir um peninga og veit þá af sjálfum sér”.

Góðtemplarareglan var stofnuð á Akureyri 1884 í kjölfar yfirgengilegs drykkjuskapar sem þótti vaxa með verslunarfrelsinu 1855 og Þorvaldur Thoroddsen nefnir brennivínsöldina í Minningabók bls. 47.
Samkeppni kaupmanna birtst þá m.a. í að þægja viðskiptavinum með víni. Brennivín var ódýrt. Drykkjutískunni er víða lýst, t.d. í Ævisögu Sumarliða Sumarliðasonar, 1865, Virkum dögum Hagalíns og hjá Þorvaldi Thoroddsen í ævisögu tengdaföður hans, bls. 196.

Ágúst á Hofi leysir frá skjóðunni á bls. 13 og segir frá því að þegar hann var 8 eða 9 ára - fæddur 1892 - hafi foreldrum tekist að slá á ,,sterka vínlöngun hans" með því að leyfa honum að drekka sig dauðan, en uppköst og höfuðþrautir, þegar vaknaði næsta dag, hafi svipt hann vínlöngun til tvítugs.

Frumkvöðull að Góðtemplarareglunni var Ole Lied, norskur skósmiður.

Sjálfsævisaga Björns Eysteinssonar, bls. 101: ,,Ég ætlaði af stað kl. 4 morguninn eftir, en þá var allt á reiðum höndum, matur, kaffi og brennivín" (gerist ~1891).

9 potta brennivíns drakk hver Íslendingur að meðaltali árið 1865, mestur hluti þess drukkinn í þéttbýli sem þá var fjórðungur af íbúatölu landsins. Efri stéttir voru síst til fyrirmyndar og rituðu Vesturheimsprestar vandlætingarpistla gegn háttalagi bræðra sinna hér.

Greip þá Hallgrímur (1841-1909) biskup 1889-1908, Sveinsson (1836) Níelssonar fróða til þess við upphaf biskupsdóms að láta synodus 1890 samþykkja yfirlýsingu um að bindindi væri ,,kristilegt kærleiksverk og velferðarmál þjóðarinnar” og svipti nokkra drykkjusjúka presta kjóli og kalli næstu ár.

Þorsteinn Thorarensen, Í fótspor feðranna, bls.303: ,,Það var Magnús Stephensen (landshöfðingi) sem réði því að Hallgrímur var skipaður biskup og tekinn ranglátlega fram yfir Helga Hálfdánarson."

Próf. Magnús Jónsson bls. 313 í Faðir minn: ,,Á skólaárum föður míns (sr. Jóns Ó. Magnússonar) var þar í skólanum eins og annars staðar dæmalaus drykkjuskaparöld eða óöld. Mátti heita að hver maður þambaði brennivín og varð mörgum góðum dreng sleipt á því Háa steinstræti. Faðir minn tók fullan þátt í þessu og hélt þeim háttum eftir að hann gerðist prestur, þó að tæplega muni það á þeim tímum hafa verið talið honum til lýta. En þegar Hallgrímur Sveinsson, biskup, hóf ,,prestabindindi" sitt, gekk faðir minn í það og bragðaði ekki vín upp frá því".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Heimildir og tilvísanir: Próf. Magnús Jónss: Faðir minn 1950; Brautryðjandinn, Skálholtsútgáfan 2011, 320; Geymdar stundir 2, Víkurútg. 1982, 15; Guðm. G. Hagalín: Virkir dagar 1, bls. 84, 98 – broslega hliðin, 257. Þorvaldur Thoroddsen: Ævisaga dr. Pjeturs Pjeturssonar, 183, 196. Guðfræðingatal. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín: Eldur á Möðruvöllum, 652 Jón Hjaltason: Saga Akureyrar, II: síld, bls. 245; drykkja, bls. 273-274.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurvideoman.gr (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1889

  • Ísfirðingar einna nyrst
  • Nú Tjallinn fer að toga,
  • Loks hjá köllum kom til tals
← 1888,,Héðan fer enginn merkismaður"1889 →Ísfirðingar einna nyrst