Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1879
1879
1879

Fæddur í New-York, í Flórens dó

Hljóðbrot0:00

Lag A, b, c, d, e, f, g

FFæddur í New-York, í Flórens dóFiske kom hingað og um sig slóaldrei í Grímsey gisti h'ann, þógæfi þeim bækur og manntöfl nóg.

Afmæli halda h'ans upp á þarog ennþá lesa þeir bækurnarað honum gengnum til Grímseyjargefnir tólf þúsund dollarar.

Glúmur Gylfason · 1879

Heimildir og samhengi

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa):
,,Daniel Willard Fiske (11. nóvemberWikipedia (opnast í nýjum flipa) 1831Wikipedia (opnast í nýjum flipa) – 17. septemberWikipedia (opnast í nýjum flipa) 1904Wikipedia (opnast í nýjum flipa)) var bandarískur ritstjóriWikipedia (opnast í nýjum flipa), fræðimaðurWikipedia (opnast í nýjum flipa) og Íslands- og skákáhugamaðurWikipedia (opnast í nýjum flipa).
Hann er frægastur hér á landi fyrir að hafa gefið Grímseyingum töfl og bókakost”.
Hann heimsótti m.a. Akureyri þetta ár. Auk annars arfleiddi hann Grímseyinga að 12.000 dollurum.
Í Grímsey er ár hvert hátíðlegur haldinn fæðingardagur Fiskes, 11.11., og börnum gefið nafn hans svo að það hverfi ekki úr eynni.
Daniel_Willard_FiskeWikipedia (opnast í nýjum flipa) er Grímseyingur nr. 1. Hver sé nr. 2 sést á slóðinni hér fyrir neðan.
2003 kom nefnilega út vegleg Byggðasaga Grímseyjar í ritstjórn Helga Daníelssonar fyrrum landsliðsmarkvarðar í knattspyrnu, sem á ætt til eyjarinnar þótt ekki sé hann sonur Daníels Fiske.

,,Grímsey fór í eyði í svartadauða og byggðist að líkindum ekki aftur fyrr en á 16. öld"
Árni Daníel Júlíusson á Söguþinginu 1997.
Drepsóttir gengu hér 1402-1404 og 1494-1496.
Vefurakureyri.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefuricelandphotogallery.com (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1879

  • Þá sem byggja Babýlon
  • Landar hafa löngum hér
  • Flatatunga og Teigakot
← 1879Landar hafa löngum hér1879 →Flatatunga og Teigakot