Ásgeiri með flesta fýsir
Lag Langt fyrir utan ystu skóga
Lag Þú Guð sem stýrir stjarna her - SSB 213
Ásgeiri með flesta fýsirfár, ef nokkur, annan kýsfyr'ir svo marga sem húsið hýsirhann fær rúm í Paradís.
Hefur Ásgeir einn Herrans salhlaðið í Þingi af grjótiHákonar bátur frá Bíldudalbrotnaði í ölduróti.
,,Skiljum við núna, Magnús minn?"- möglaði lengi greyið -Sverri hlýddi þá hundurinnog hoppaði upp í fleyið.
Heimildir og samhengi
Með ágóða af sauðasölu kostaði Ásgeir Einarsson (1809-1885) bóndi og alþm., kirkjubyggingu af steini á Þingeyrum, en Sverrir Runólfsson (1831-1879) hlóð. Tók það danskan mann, Jens Stær, 13 ár að sprengja grjót og draga vestan úr Nesbjörgum með hestum á ís og járnuðum uxum á mel, en aka á vögnum 700 faðma á vegi.
Eftir árið 1000 spruttu kirkjur upp sem gorkúlur á jörðum bænda vegna þeirrar trúar sem fram kemur í vísunni. T.d. ~100 kirkjur í Svarfaðardal samkvæmt rannsókn dr. Árna Daníels Júlíussonar.
Björn Þorsteinsson: Ný Íslandssaga, 172: ,,...var það trú manna, að hver sem reisti kirkju myndi eiga jafnmörgum mönnum á að skipa í himnarík og staðið gætu á kirkjugólfinu".
Saga Íslendinga, IX, I, bls. 467 segir Sverri einan á bát er hann fór sína hinstu för, sem var frá Skagaströnd til Hrútafjarðar 1879. Sögn er að hundur hans, sem Magnús hét, hafi þráast við að stökkva upp í bátinn þar til Sverrir sagði: ,,Eigum við þá að skilja hérna, Magnús minn”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Skip Hákonar Bjarnasonar, f. 1828, fórst í aftakaveðri 2. apríl við Mýrdalssand á heimleið hlaðið vörum til verslunar hans á Bíldudal.
Áhöfn dönsk sem ásamt Hákoni yfirgaf því miður skipið. Aðeins skipstjóri, hraustmenni, náði Höfðabrekku við annan mann.
Ekkja Hákonar seldi þá Pétri J. Thorsteinsson (1854-1929) verslun og allar eignir á Bíldudal og urðu grunnur að velgengni hans.
Börn þeirra Hákonar urðu öll þjóðkunn og kenndu sig við föðurafa sinn, þeirra á meðal sm. Lárus (1893) og Ingibjörg skstj. Kvennaskólans í Rvk., alþm. 1923, fyrst kvenna.
Faðir Hákonar hét eftir móðurafa sínum, Bjarna presti á Mælifelli (1733-1809) Jónssyni (sjá 1733 og 1810) en föðurafi Hákonar var sr. Gísli síðast á Reynistað, Oddsson, þess er hvarf 1786, Gíslasonar Hólabiskups Magnússonar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Um Bíldudal, eftir að Pétur J. Thorsteinssn settist þar að með útgerð og verslun upp úr 1880, ritar
Gísli Jónsson í Frá foreldrum mínum, bls. 140: ,,...var afkoma fólks á Bíldudal rómuð um allt land enda hafði íbúatala fjórfaldast á árunum 1880 til 1890. Fólk streymdi þangað hvaðanæva. ...Sögurnar sem gengu af atvinnulífinu lokkuðu ..."
Sjálfur tók Gísli að sér forystuhlutverk á Bíldudal um og upp úr kreppunni, sjá Vefurjakobk.blog.is (opnast í nýjum flipa)
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurferdalag.is (opnast í nýjum flipa)
Tilvísanir:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur III, bls. 50.
Lúðvík Kristjánsson, Bíldudalsminning, Ísafoldarprentsm. 1951.
Um Jens Stær – sjá bók Guðrúnar Björnsdóttur, Íslenskar kvenhetjur, bls. 7 og hér við 1821.