Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1787
1787
1787

Harmlostin kona á heitingar brá

Hljóðbrot0:00

Lesið - eða Þrútið var loft og þungur sjór

HHarmlostin kona á heitingar bráog hengdi sig eftir þaðhinn skildi kroppnum höfuðið fráog hagræddi á leyndum stað.

Glúmur Gylfason · 1787

Heimildir og samhengi

Úr Djáknaannálum VI, bls. 294: ,,Um haustið hengdi sig kvenmaður á Suðurnesjum og hafði heitingar við annan mann, en hann af hræðslu tók af henni höfuðið áður en hún var dysjuð. Var hún svo eftir skipun stiptamtmanns og undirlagi Skúla fógeta aftur upp grafin. Var þá höfuðið af kroppnum og sett við þjóinn. Kvaðst maðurinn það hafa af tekið vegna hræðslu svo hún eigi aftur gengi. Var svo þessi maður og sonur hans fastir teknir og dæmdir í tugthús lítinn tíma”.

Í Rauðskinnu III og Úr byggðum Borgarfjarðar, 228, segir frá Eyjólfi nokkrum sem varð strandaglópur þegar Guðmundur í Dægru á Innnesi - neðan vegar nálægt Hvalfjarðargöngum - hafði ýtt úr vör áleiðis til Reykjavíkur eftir miðja 19. öld. Sinnaðist Eyjólfi og kallaði til Guðmundar að hann myndi senda honum kaldar kveðjur þótt síðar yrði. ,,Síðan steypir hann sér umsvifalaust fram af kletti og drukknar þar". Kona Guðmundar lá þá á sæng eftir barnsburð, en ,,steig aldrei á fætur frá þessum atburði og lifði rúmlæg í sextíu og tvö ár". Sjá og 1598.

Kristján IV. hafði af gefnu tilefni (1598) sent Íslendingum fororðningu 1609 sem bannaði að brenna lík og ganga milli bols og höfuðs og færa til þjós í nefndum tilgangi. Þetta leyfði þó lm. L. Gottrup, árið 1700 þegar sakamaður sem hengja skyldi hótaði að ganga aftur og drepa þann sem handsamaði hann á flótta, sem var bóndinn á Ásgeirsá.

Myndir

Einnig frá árinu 1787

  • Óæðri skulu bognir bera
  • Versli þengils þjónar jafnt
  • Af íslenskum fékk alveg nóg
  • Illugi ei brúkaði önnur tól
← 1787Versli þengils þjónar jafnt1787 →Af íslenskum fékk alveg nóg