Í Hnífsdal átti ógn sér stað
Lag Sá frjáls við lögmál
Í Hnífsdal átti ógn sér staðhver öllum þótti miðurþá ,,farðu til helvítis" kerling kvaðhneig karl hennar dauður niður.
Orðanna sýndist mikil magtsem miður þóttu vönduðog karls þá lík var kistulagtdatt konan niður önduð.
Heimildir og samhengi
Íslands Árbók, V, bls. 85: ,,Í Hnífsdal á Vestfjörðum bar svo til um veturinn (Í Árbókinni skráð 1776, en sumt þar talið eiga heima einu eða tveimur árum síðar), að bóndi og kona hans höfðu deilt illdeilu. Þá maðurinn gekk frá henni fram úr baðstofunni, kallaði hún eftir honum og sagði: ,,Farðu til helvítis!" En fram í bæjargöngunum hneig hann dauður niður. Þegar konan frétti þetta brá henni við og setti að henni harm. Deginum eftir var líkið kistulagt. Konan var viðstödd, og leið hún þá líka dauð niður.
Voru þau síðan bæði sett í eina gröf".