Sýslumaður sér gerði gott
Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915
Sýslumaður sér gerði gottaf góssi á Ströndummargar tunnur bar á brottmeð berum höndum.
Heimildir og samhengi
Ísl. annálar IV, 557: ,,...í Septembri klofnaði þar (í Strandasýslu) dugga, meinast hollenzk, á skeri. Menn fórust.
Annan helminginn rak með nokkru góssi. Það var Strandasýslumanni og öðrum þar gott".
Kjartan Sveinsson, Afbrigði og útúrdúrar, 258: ,,skipsströnd, ...báru með sér öll lífsins gæði, matvæli og vín, salt og fisk, kaðla og segl og gnægð af góðu og dýrmætu timbri þegar skipin voru rifin. Það þótti hrein dyggð að stela undan af strandi sem mestu svo sýslumaður fengi sem minnst á uppboð".
Sm. Stranda var Halldór Jakobsson (1735-1810), kraftakarl, eins og þeir frændur frá Búðum sem kunnu misjafnlega að fara með afl sitt. Sjá 1764 og 1788.
XII. bindi Íslendingasagnaútgáfunnar, 1947 (Guðni Jónsson), bls.XIII, segir að Halldór Jakobsson sé almennt talinn höfundur Ármannssögu hinnar yngri.