Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1783
1783
1783

Móðuharðindin hófust á

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

MMóðuharðindin hófust áhvítasunnumorgni.Lausamennsku má ei námögur ókynborni.

Glúmur Gylfason · 1783

Heimildir og samhengi

Skaftáreldar í Lakagígum stóðu frá morgni hvítasunnudags, 8. júní, til febrúar 1784.
Eldmessa sr. Jóns Steingrímssonar á Klaustri var á Þorláksmessu, 20. júlí, þegar hraunflóðið stöðvaðist í farvegi Skaftár þar nærri.
Formáli 200 ára Afmælisrits Máls og menningar um Eldana hefst svo: ,,Skaftáreldar og Móðuharðindi eru eitthvert alvarlegasta áfall sem íslenska þjóðin hefur orðið fyrir á síðari öldum. Gríðarleg hraunflóð ollu miklum og varanlegum spjöllum á landi, bújörðum og bithögum í Vestur-Skaftafellssýslu".

Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 267: ,,Æðstu embættismenn konungs tóku ekki mark á aðvörunum Íslandskaupmanna um ástandið í landinu þegar haustskipin komu til höfuðborgarinnar árið 1783. Ekkert mátti gera Íslandi til bjargar fyrr en sérstakur sendimaður (og aðalsmaður) hafði sótt landið heim og skilað stjórninni skýrslu um ástandið.
Hrokafull formfesta tafði þannig allar ráðstafanir til hjálpar Íslendingum í Móðuharðindunum um eitt ár".
Meira en helmingur alls kvikfjár féll og þjóðinni fækkaði um 20% t.o.m. jarðskjálftaárinu 1785. Tók þá við bólusótt 1786, sem felldi 1.500 manns, ,,hið besta og mannvænlegasta fólk", er haft eftir Hannesi biskupi.

Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 34: (Eftir tillögum Landsnefndarinnar) ,,reyndi kóngur að bæta efnahag Íslands með því að hefja í landinu þilskipaútgerð og á margan annan hátt að örva fiskveiðar ...kaupmenn skyldu dveljast á Íslandi allt árið og taka þátt í atvinnuvegunum. Íhaldssamir Íslendingar óttuðust þessa þróun og hófu áróður bæði gegn fiskveiðum og flakki... Með því að spyrða þetta tvennt saman tókst ,,bestu bændum" að fá lausamennsku bannaða og vinnuaflið tengt við lögbýlin. Þar með gátu menn utan bændastéttar ekki farið á sjó á eigin vegum eða í kaupamennsku á sumrum. Til þess að fá að giftast varð fólk núna að eiga þrjú kýrverð og eiga völ á ábýlisjörð eða jarðarparti. Giltu lög þessi næstu 90 ár. Á sama tíma (1788) var bændaánauðinni aflétt í Danmörk”.

Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 65: ,,Um 1970 var hljómgrunnur hérlendis fyrir að heyra hvernig Íslendingar hefðu kúgað Íslendinga"

Vistarband hjúa, sem þarna er hert á, ítrekaði Lögrétta og afnam allar undanþágur frá vistarskyldu og bannaði lausamennsku. Það hafði og verið gert vegna mannfæðar við lok plágunnar fyrri, 1404. Þá hafði vinnufólki fækkað svo mjög, að jafnvel heldri konur urðu að mjólka. Skyldu hjú vistast á miðdegi á krossmessu, 3. maí, sem varð 14. maí 1701 af ástæðu sem rakin er við 1700. Ráð bænda var að hafa girnilegan miðdegisverð á vinnuhjúaskildaga af því að hjú sem át miðdagsskattinn hjá fyrri húsbónda hafði þar með étið sig í vistina til árs.
Tilvísun: Árni Björnsson á slóð:
Vefurnatturan.is (opnast í nýjum flipa)

Vistarskylda hjá bónda var sett þegar á þjóðveldisöld í Grágás.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Skagfirsk fræði VIII, bls. 20: ,,...bestu kvíaærnar töpuðust frá málnytugagni um sumarið. Þá var bæði grasvöxtur og heyjanýting með bágasta móti og hey reyndust skepnum banvæn veturinn eftir. Þessi óáran orsakaðist af svo kallaðri ,,brunamóðu” sem eftir Jónsmessu þá um sumarið vall úr Skaftárjökli og eitraði gras og því féll fénaður um land allt. Veturinn næsti eftir varð hinn grimmasti einkum eftir nýár 1784 með mestu hafísalögum, stórkafaldshríðum og frostbitru svo gjörvallur fénaður bónda hrundi niður um veturinn hjá meðalbændum og þeim efnaminni”.

Vefurkatlageopark.is (opnast í nýjum flipa)

HeimildForlagið (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1783

  • Það ár er nú horfið í aldanna skaut
← 1782Svo var orðið aldarfar1783 →Það ár er nú horfið í aldanna skaut