Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1770
1770
1770

Nú skulu verða færri frí

Hljóðbrot0:00

Lag Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

Lag Afi minn fór á honum Rauð

NNú skulu verða færri frítil fánýtis og neyslutólf menn finnist flestir íef fátækir halda veislu.

Landsnefndin fyrri í fangelsi bjóFróns skal hrista af slenlítt varð úr en lengra dróLudwig van Beethoven.

Glúmur Gylfason · 1770

Heimildir og samhengi

Kom Landsnefndin fyrri og settist að í ófullgerðu tugthúsinu í Lækjarbrekkunni í landi Arnarhóls, sem Viðeyjarklaustur hafði fengið með próventumanni 1534, Kristán III. tók klaustrin og eigur þeirra í sína vörslu 1554.
Heimild: Steinunn Kristjánsdóttir, Leitin að klaustrunum, bls. 238.

Harald Gustafsson telur skv. Mellan kung och almoge, bls. 283, að skipun Landsnefndarinnar sýni að trú stjórnarinnar á Skúla Magnússon hafi dvínað.

Meðal þess sem Landsnefndin að boði Struenses læknis (stjórnaði í nafni konungs frá mai 1770 og út árið 1771) reyndi að koma fram ári síðar var að fækka hegidögum: Þríheilagar hátíðir yrðu tvíheilagar, þ.e., jól, páskar og hvítasunna og afhelgaðir: hreinsunardagur Maríu, þ.e., 1. janúar; þrettándinn, kyndilmessa, 2. febrúar, boðunardagur Maríu, en hann haldinn 5. sd. í föstu; messa Mikaels, 29. september, allra heilagra messa, 1. nóvember, en textar þess dags og bænir lesnar 1. sd. í nóvember og loks Marteinsmessa 11. nóvember.
Þessar ákvarðanir ítrekaðar 1776, en þær má lesa í Alþingisbók 1771, bls. 238.
Einnig hér:
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Vefurpolitikenhistorie.dk (opnast í nýjum flipa)

Þá er og systkinabörnum leyft að giftast án þess að sækja um leyfi.

Konungleg tilskipun um að fátækir byðu ekki fleir en 12 gestum til brúðkaupsveislu kom eftir að lm. Björn Markússon bað í áliti sínu til Landsnefndarinnar um að reglur yrðu settar sem takmörkuðu óhóf í veislum. Am. Ólafur Stefánsson tók í sama streng og vildi reglur um ofrausn í neyslu og klæðaburði.
Björn vildi auk þess banna lausamennsku og setja þak á laun vinnufólks. (Harald Gustafsson: Mellan kung och almue, bls. 144-145 og 152.

Úr byggðum Borgarfjarðar I, bls. 370 lýsir Kristleifur Þorsteinsson brúðkaupssiðum á s.hl. 19. aldar sem lengi höfðu haldist óbreyttir. Tekur dæmi af brúðguma sem átti 7 sauði og skar þá alla til veislunnar.

Í bókinni Oddur Sigurðsson lögmaður, bls. 30n, rekur Jón Aðils fyrst hörmungar íbúanna í harðindum 18. aldar og segir síðan: ,,Eptir þeirri lýsingu sem hér er á undan gengin mætti ætla að landsmenn hefðu tamið sér sparneytni og hófsemi, einkum alþýðan; en því fer fjarri. Þegar menn fengu eitthvað handa á milli eyddu þeir því optast nær jafn harðan með dæmalausri léttúð... stórveislur og samsæti, skart í klæðaburði og gengdarlaust óhóf í nautn matar og víns var eitt af einkennum aldarinnar... við slík tækifæri (brúðkaup) var boðsfólkið að jafnaði mjög margt og ekki var um annað að tala en að það sæti minnst 4-5 daga”.

Sr. Matthías Jochumsson skal nyrðra hafa sagt frá 200 manna brúðkaupsveislu í Rangárþingi sem stóð í viku og komust hjónin aldrei úr skuldum.
Fréttablaðið 28.03. 2020, bls. 21, Kári Stefánsson, læknir: ,,Við kunnum ekki að vera rík og við kunnum ekki að láta okkur líða vel”.

Ludwig van Beethoven, f. 1770, d. 1827.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)




Myndir

Einnig frá árinu 1770

  • Viljum ekki versla nú
← 1769Að nú sé konungsútgerð öll1770 →Viljum ekki versla nú