Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1679
1679
1679

Vert er Þorleif við að staldra

Hljóðbrot0:00

Lag Langt fyrir utan ystu skóga

VVert er Þorleif við að staldraog víst má færa það til sanns,að enginn vinur var hann galdravitna um það brennur hans.

Glúmur Gylfason · 1679

Heimildir og samhengi

Lögmannaskipti NV: Segir af sér Þorleifur Kortsson, lm. NV frá 1662, d. 1698.

J. Espólín í Árbók 7. hl. 2: ,,Þorleifur lögmaður hafði verið mest virður fyrir alvöru hans hina miklu við galdramenn,
lauk og mjög brennum þeirra með hans lögsögn".

Þorleifur Kortsson var sýslumaður Stranda og lögmaður þegar var upp á sitt besta og bjó þá á Prestsbakka og síðast á Bæ í Hrútafirði, en á tímabili á Þingeyrum. (Ísl. æviskrár).

Forlagið fjallar þannig um bók Más Jónssonar, Galdur og guðlast á 17. öld:
Galdramál 17. aldar eru óhugnanlegur vitnisburður um refsihörku yfirvalda sem á sextíu ára bili létu brenna eina konu og tuttugu og einn karl á báli, fyrir utan aðrar aftökur sem voru miklu fleiri. Sum þessara mála sýna líka yfirvegaða fólsku einstaklinga sem vegna hræðslu eða haturs kærðu nágranna sína og kunningja fyrir galdra, vitandi vits að dauðadómur blasti við eða harkaleg hýðing sem gekk nærri lífinu. Veikindi á fólki og jafnvel dauði voru helstu sakarefni en líka skepnumissir eða aflabrestur og önnur skemmdarverk. Hugarheimur þessara ára er framandi og hefur lengi verið, því þegar í byrjun 18. aldar sáu menn að sér um ofsóknirnar og í framhaldinu dvínaði trú á galdra.

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1679

  • Til Indía Jón með dönskum dró
← 1678Úr Ölvesinu Eyvi hljóp1679 →Til Indía Jón með dönskum dró