Sýslumaður og soldát par
Lag Tíu litlir negrastrákar
Lag Jólasveinar 1 og 8 (Oh, my darling)
Sýslumaður og soldát parsér neitt gáfu um andannen báðir urðu biskuparog börðust svo við Fjandann.
Postillur og predikanirprestum þurftu geraþví misjafnlega munu vanirog margir slakir vera.
Of seint mun nú úr því skera- annar tuggði, hinn drakk vín -hvort kunni að sama brunni beraBauka-Jón og Vídalín.
Heimildir og samhengi
Sm. Jón Vigfússon (1643-1690) dæmdur 1672 frá sýslu fyrir óleyfilega verslun. Vígður biskup 1674.
Tengdasonur hans, Jón Vídalín (1666-1720), gekk í herinn 1689, en keyptur þaðan út 1691.
Andlegheit Vídalíns meiri en vísan kveður, en ,,nokkuð hneigður til drykkju" segir m.a. í Íslenskum æviskrám.
Jón Þ. Þór, Bauka-Jón, bls. 105:
,,Auk búsýslunnar notaði Jón tímann (1674-'84) á Leirá til lærdóms- og guðfræðiiðkana og í líkpredikun yfir honum í Hóladómkirkju árið 1690 lýsti sr. Jón Gunnlaugsson athöfnum hans á þeim vettvangi: ,,..gjörandi af Guðs anda innblæstri eitt ágætt Opus og mærkilegar prædikanir út af pínu og dauða Herrans Jesú Christi. Þá hann hafði það verk fullendað, tók hann sér fyrir hendur að gjöra og framsetja Postillu og prædikanir yfir öll Evangelia árið um kring".
Þessi rit Jóns Vigfússonar voru aldrei prentuð og munu nú týnd með öllu.
......bls. 124: ,,Hjónaband Sigríðar yngri og Jóns Vídalín gefur tilefni til vangaveltna. Áður var sagt frá húslestrarbókunum - postillunum - sem síra Jón Gunnlaugsson sagði í líkpredikuninni í Hóladómkirkju að Jón Vigfússon hefði samið á Leirá á meðan hann beið þess að taka við biskupsdómi á Hólum. Engin ástæða er til að draga orð dómkirkjuprestsins í efa, en enginn veit hvað varð um þessar postillur og nú eru þær vafalaust glataðar ... þær hljóta hins vegar að hafa verið til í handriti og hugsanlega fleiri en einu afriti. Eðlilegt er að ætla að handrit Jóns Vigfússonar hafi eftir hans dag lent í höndum erfingja og þá trúlegast að tveir menn hafi fremur en aðrir haft postilluhandritin undir höndum: síra Þórður á Staðastað og Jón Vídalín. Af þeim tveimur er Jón líklegri....
Fátt er nú vitað um aðföng meistara Jóns að hinni frægu húslestrabók sinni, en skemmtileg er sagan sem dr. Gunnar Kristjánsson tilgreinir í inngangi að nýjustu útgáfu Vídalínspostillu, þess efnis, að biskup hafi tíðum legið uppi í rúmi er hann samdi textann og lesið dómkirkjuprestinum hann fyrir. ...
Hér verður því ekki haldið fram að Jón Vídalín hafi stuðst við rit tengdaföður síns er hann samdi postillu sína. Til þess brestur heimildir, en vel má geta þess til að svo hafi verið... og þá er hlutur Bauka-Jóns í íslenskri menningar- og kirkjusögu meiri en almennt hefur verið talið".