Fótalaus Markús mægðis við
Lag Veröld fláa sýnir sig - Bj.Þ. 874
Fótalaus Markús mægðis viðmenn af hæsta standiStokkseyrar-Dísa stór í sniðstóð þeim dönsku af vandi.
Heimildir og samhengi
Mælifellsannáll I, 557: ,,Árnessýslu fékk danskur maður, Hans Vilhjálmsson Landemann.
Hann átti Guðríði Markúsdóttur (fótalausa, sjá 1629), dóttur Guðrúnar Torfadóttur Erlendssonar sýslumanns Árnessýslu (1644,1660, 1661, 1662) systurdóttur Þormóðs Torfasonar (1671, 1719) kngl. sagnaskrifara... Fékk síðan ýmisleg geistleg og verzleg embætti, loksins biskupstitil, og varð 1749 hafinn í aðalsstétt með nafninu Rosencrone, en deyði á sama ári; þaðan er greifaættin Rosencrone upprunnin.
Guðrún Markúsdóttir, systir Guðríðar, var móðir sm. Markúsar Bergssonar, föður lm. Björns Markússonar”.
Þriðja systirin var Þórdís, Stokkseyrar-Dísa (1668-1728). Þórdís stóð í miklum málaferlum, var ,,stórlát, viðskotaill og talin fjölkunnug". Unga gifti Landemann hana Guðmundi West Jasonarsyni, 35 árum eldri, sem dó 1690 og fær svipað orð og hún hjá Espólín, og skildi eftir sig í Flóa nafnið Jason.
Skv. bls. 301 í ,,Ástand Ísl. um 1700" þá átti umrætt fólk, ,,Stokkseyrarættin" tæpan helming allra jarðeigna í Stokkseyrarhreppi 1708, þegar Jarðabók Árna og Páls er skráð þar. Guðmundur West Jasonarson fór fremstur í flokki Stokkseyrar-ættarinnar en ,,Stokkseyrar-Dísa" í 30 ár að honum látnum.
Sem kirkjuhaldari á Stokkseyri fór Þórdís sínu fram gegn hverjum sem var og hélst það uppi en kærumál náðu allt til kóngs og fékkst þó engin bót á né heldur þótt biskup, Jón Árnason, hótaði henni bannfæringu.
Dæmi um veikt konungsvald, sem varð að hygla voldugum og ríkum svo ekki stæðu í vegi fyrir umbótum. Sbr. 1701-2,
Ekki þótti kunnátta og færni Þórdísar einleikin og fékk því á sig galdraorð. Sagnir af ,,kunnáttu" hennar eru í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Þær tók Óskar Halldórsson 1971 upp í bókina Galdrasögur og eru þar á bls.178 til 181.
Einar borgari (1831-1904), kaupmaður í Einarshöfn, Eyrarbakka, var 4. liður frá Stokkseyrar-Dísu. Hann var faðir Sigfúsar tónskálds og dómorganista (1913).
Tilvísun: Sagnabrot Helga í Hólum, Sunnlenska bókaútgáfan 2009, og Íslenskar æviskrár.