Kóngurinn af drykkju dó
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Kóngurinn af drykkju dódóm hans Guð þó mildarþví turni Hóla taldi úr skógtíu stoðir gildar.Kjörinn biskup Oddur erEinarsson frá Nesium það vitni Brahe ber:að byr úr stjörnum lesi.
Heimildir og samhengi
Lést Friðrik II. ,,Drakk sig í hel”, sagði prestur í útfararræðunni.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fyrir andlátið gaf kóngur Hólakirkju m.a. 10 stoðir, 9m langar og allt að 5 álna gildar í nýjan turn fyrir þann er fauk 1584 og er haft eftir Arngrími lærða.
Krónprinsinn, Kristján IV. er þá 11 ára og stjórnar ríkisráð til 1596.
Fitjaannáll II, 86-87 : ,,Var kjörinn til biskups í Skálholti Oddur Einarsson, hver uppalinn var í ...Nesi í Aðalreykjadal. Studeraði þar mörg ár í Kaupmannahafnarháskóla... lærði einninn hjá Tyge Brahe. Var haldinn á þeim dögum hálærður maður og í mörgum tungumálum vel menntaður, einninn góður Astronomus”. Annálinn ritaði sonarsonur Odds.
Tyge Brahe var stjörnufræðingur og fékk athugunaraðstöðu í Úraníuborg á eynni Hveðn á Eyrarsundi, sem nú tilheyrir Svíþjóð.
Stjörnufræðingar páfagarðs reiknuðu út tímatal, en nú var þjónusta þeirra ekki lengur þegin í löndum mótmælenda, sem lögðu því sjálfir áherslu á þá grein til þess að reikna sjálfir út kirkjuárið. Vitað er að þeir Arngrímur lærði og Guðbrandur biskup stóð sig í þessum efnum, sem og Þórður Þorláksson, og sögur af Oddi benda til hins sama.
Um biskupsval Odds segir séra Ágúst Sigurðsson í Fornum frægðarsetrum lV, 40. ,,Síra Erlendur Villardsson (,,merkur fyrirklerkur" Brbst. Fljótshlíð) var Gyðingur að uppruna, kallaður eðalborinn í Þýskalandi. Hafði Erasmus svo mikið álit, að hann kom mjög til greina þegar eftirmaður Gísla biskups Jónssonar, tengdaföður hans, var valinn á Skálholtsstól, þótt ekki yrði úr, er hann hikaði mjög við og sumum þókti miður að útlendingur og það m.a.s. Gyðingur yrði biskup í Skálholti. Þær vangaveltur notfærði Guðbrandur Hólabiskup sér og tókst að koma Oddi Einarssyni í embættið, ungum og fátækum prestssyni úr Norðurlandi."
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)