Fjögur hundruð fram um ár
Lag Yfir kaldan eyðisand
Fjögur hundruð fram um árfátæklingar tyftirþeir sem á hreppinn fara, fjár-forræðinu sviptir.
Heimildir og samhengi
Lýður Björnsson, Frá samfélögum, 143:
,,Hreppsómagar voru sviptir fjárforræði með lögréttusamþykkt 1592".
Frá 1929 héldu sveitarstyrksþegar kosningarétti ef þeir höfðu haft hann áður.
Um afskipti hreppsnefnda af hjónabandi og barneignum fátæklinga fjallar Friðrik G. Olgeirsson í Langnesingasögu I, bls. 277.
Sjá og 1857.
1921 fengu hreppsómagar heimild til að ganga í hjónaband (sjá 1922) án þess að greiða hreppi sínum það sem út hafði verið lagt þeirra vegna.1935fengu þeir loks kosningarétt. Það var í tíð ,,Stjórnar hinna vinnandi stétta".
Í endurminningum sínum telur Einar Olgeirsson Alþýðuflokkinn hafa beitt sér við Framsókn í málinu vegna þrýstings frá Kommúnistaflokknum, sem stofnaður var út úr Alþýðuflokknum1930.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)