Niðurlendingar náðu sér
Lag Dvel ég í draumahöll
Niðurlendingar náðu sérniðri á víkingonumbrömluðu vestra og börðu hérog brutu á ungum konum.Verst fór Eggert út úr þvíallt varð líf hans brekkaer þjakaði sorgin, þung sem blý,þá fór hann að drekka.
Heimildir og samhengi
Margs hefur verið getið til um hvaðan þeir voru sem rændu og rupluðu á Patreksfirði og 30/6 á Saurbæ á Rauðasandi er þar bjó f.v. lm., Eggert Hannesson (~1516- ~1583) sem greiða mátti lausnargjald fyrir.
,,Niðurlendingar" nær yfir fyrri tilgátur og vísar til þess að á víkingatíma herjuðu Norðmenn suður með strönd evrópu og t.d. þóttist Egill Skallagrímsson hafa tekið þátt í því og gert það gott.
Í Sögu Íslands VI, 159 eru Englendingar bendlaðir við rán þessi enda rændu þeir samsumars í Færeyjum. Væri svo, þá ættu þeir líka harma að hefna segðu þeir sem trúa því að Njálssynir hafi ásamt Kára haldið í víking á þeirra slóðir og orðið gott til fanga.
Yrði byrjunin þá: Enskir núna náðu sér / niðri á víking...
Breskir höfðu áður gert íslenskum að greiða skuldir víkinga bæði heima og erlendis. Tóku tvö íslandsför við Suðureyjar 1332, skip Björns Þorleifssonar og Ólafar 1466, og rændu og rupluðu víða á Íslandi eftir að þeir tóku að stunda hér veiðar, t.d. 1424 á Bessastöðum og nyrðra og er þá fátt eitt talið.
Eftir ránið flutti Eggert til Hamborgar og lést þar úr drykkju ~1583, en dóttir hans, Ragnheiður, flutti með manni sínum, sm. Magnúsi prúða Jónssyni, til Saurbæjar, Rs. Hann lést 1591, en hún lifði ekkja í hálfa öld, d. 1642. Ragnheiður var 2. kona Magnúsar.
Vefurwikiloc.com (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Frá árinu 845 t.o.m. 994 eru til þýskar heimildir um ránsferðir skandinavískra víkinga þangað - segir Der Spiegel Geschichte nr. 5, 2022, bls.43-44.
Víkingar rændu bæði verðmætum og fólki, sem látið var laust gegn háu gjaldi, sem safna mátti á stóru svæði ef um æðristéttarpersónu var að ræða.
Fæstir gátu keypt sig lausa en voru boðnir upp á þrælamörkuðum og/eða enduðu þannig í víkinganýlendunum á N-Atlantshafseyjunum einkum Íslandi. Húsbændur eðluðu sig með kvenþrælum enda eru um 63% íslenskra kvenna með skosk eða írsk erfðaefni.
Í ránsferðum allt til Miðjarðarhafs, voru þúsundir slíkra norðurevrópskra gísla árlega seldar til þrælkunar í Egyptalandi, Miklagarði og Bagdad á meðan víkingaöldin stóð. Myntir grafnar úr jörð á Norðurlöndum eru meðal gagna sem styrkja þessar ályktanir Der Spiegel og heimildarmanns blaðsins, sem er forstjóri víkingasafnsins Haithabu í Schleswig, M. S. Toplak.
Allar aðfarir víkinga voru hinar sömu og þeirra sem rændu á Íslandi 1579 og 1627.