Brennisteinsfursti og biskupsfrú
Lag Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881
Brennisteinsfursti og biskupsfrútil brúðarsængur gangavonandi honum verður trúþótt vilji holdið manga.
Heimildir og samhengi
Ganga í hjónaband (~1567) Nikulás Þorsteinsson, sá sem varð umboðsmaður Munkaþverárklaustursjarða í skiptum við kóng fyrir brennisteinsréttindi Reykjahlíðar 1563, og Sigríður Sigurðardóttir, fráskilin kona Ólafs biskups Hjaltasonar.
Hún hafði áður tekið fram hjá biskupi með sveini hans og biskupshjónin skildu með alþingisdómi um 1565.
Fitjaannáll, II, 52: ,,Kvinna Ólafs biskups var Sigríður sem hann hafði haldið við áður en hann varð biskup. Hún féll fram hjá honum með Bjarna Sturlasyni og bar það fyrir sig að hann yrði sér ei að manni".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Um föður Sigríðar, Sigurð Sturluson er fjallað í Íslenskum æviskrám v. bindi, bls. 486
Nikulás klausturhaldari lést blásnauður 1591, en hlýtur að hafa búið börn sín vel að heiman af því að þau fengu góð gjaforð. Þau átti hann öll 6 með fyrri konu sinni.
Arnór Sigurjónsson, Ásverjasaga, bls. 286-7: ,,...hefur Nikulás dáið örsnauður maður og skuldað síðari eiginkonu sinni mikinn hluta séreignar hennar...Þessi fjárþurrð Nikulásar á síðustu árum hans hefur ...stafað af hallæri sem valdið hefur því að leiguliðar klaustursins hafa ekki getað staðið í skilum við hann."