Ofar tekur en í jarka
Lag Ekki linnir umferðunum um Fljótsdalinn enn; Bj.Þ. 659
Ofar tekur en í jarkaÁin, kennd við Dalþurrum fót nú um má arkayfir hana er skal.
Heimildir og samhengi
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa) :
,,Þess er getið í Íslandslýsingu Jóns Þorkelssonar, 1748, að þýzkir kaupmenn á Vopnafirði hafi gefið efni til brúar á Jökulsá. Líklegt að hafi verið nálægt miðri 16. öld, er næsta brú á undan hafi verið ófær orðin eða fallin og staðið á framkvæmd til endurbyggingar. Hafi þýzkir kaupmen á Vopnafirði viljað með því greiða fyrir viðskiptum sínum við bændur á Héraði austan Jökulsár”.
Þetta er tekið úr grein Halldórs Stefánssonar alþm. í Sunnudagsblaði Tímans 18. nóv. 1962 um brú yfir Jöklu á Fossvöllum. Þar segir líka frá steinboga við Brú, sem sumir telja fallinn 1625, en aðrir að staðið hafi fram um 1700.
Halldór getur og um brú þá á Jökulsa, sem nefnd er í Droplaugarsonasögu í sambandi við víg Helga Ásbjarnarsonar árið 1008 (Íslendingabók) og ætlar henni sama stað og síðari brýr.
Í Hrafnkelssögu Freysgoða, 8. kafla, segir: ,,Sámr snýr aðra leið ór dalnum. Hann ferr norðr til brúa ok svá yfir brú og þaðan yfir Möðrudalsheiði".
Þetta er á s.hl. 10. aldar. Og enn segir sagan í 13. kafla: ,,...þar til er þeir koma ...í Jökulsdal, fara yfir brú á ánni".
Um verslun Þjóðverja á Austfjörðum, er sátu einir að henni á seinni hluta 16. aldar, er fjallað í Sögu Íslands VI, 148. Segir þar m.a.: ,,...færu á skútum um alla firði til að flytja vörur og sækja, bændum að kostnaðarlausu, ...smíðuðu fiskiskip fyrir landsmenn eftir þörfum, hefðu með sér bartskera (,,lækna"), flyttu fjalvið eða borð til kirkna og væru sanngjarnir".
Sjá 1672.