Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1759
1759
1759

,,Nú vill enginn eiga þig”,

Hljóðbrot0:00

Lag Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

NN,,ú vill enginn eiga þig”,Eggert blað á festi,kóngur má því klæða sigí kaupmannsslopp og vesti.

Glúmur Gylfason · 1759

Heimildir og samhengi

Hörmangarar, sem höfðu haft verslunina frá 1743látnir hætta henni og enginn fæst til Íslandsverslunar þótt tvívegis væri boðin upp árið 1758 enda íslenskt efnahagslíf illa statt.
Niðurstaðan varð konungsverslun t.o.m. 1763. Eggert Ólafsson (1767, 1768) orti þá:

Fyrr þín gæði fýsilig / fjöldi sótti þjóða /
nú vill enginn eiga þig / ættarjörðin góða.

Hugmynd Skúla fógeta var (sjá1754) að íslenskir landeigendur mynduðu verslunarfélag og forstjóri konungsverslunarinnar frá 1760, N. Ryberg, vildi stórauka útgerð Íslendinga, en af hvorugu varð og í Sögu 1981 ritar H. Gustafsson um vel heppnaða andstöðu íslenskra embættismanna við þeim nýjungum.

Ásgeir Jónsson um sama: ,,Kaupmenn gátu lítið sem ekkert beitt sér þótt þeir fegnir vildu því að lög landsins bönnuðu þeim að hafa fasta búsetu, ráða Íslendinga í vinnu, gera út skip eða fjárfesta í nokkru öðru því að íslenskir landeigendur vildu ekki samkeppni á vinnumarkaði eða nýja stétt sem keppti við þá um völdin". SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)

Heimild: Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 161.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

LÍFTAUG LANDSINS, I, 209, Gísli Gunnarsson: ,,...1760 ...höfðu nýlega gengið yfir landið harðindi með miklum hafís langt fram á sumar, tvö ár í röð. 11,1% fólksfækkun var árin 1755-1758, mest sakir hungurs og hungurstengdra sjúkdóma. Á sama tíma voru viðskiptakjör kaupmanna (Hörmangara) óhagstæð, mest sakir verðhækkunar á korni og verðlækkunar á skreið".
Kaupmenn ,,voru fjandsamlegir tilraunum til atvinnunýjunga (Skúla), engu minna en margir íslenskir höfðingjar".

Myndir

Einnig frá árinu 1759

  • Kóngur að Skúla enn skildingum lumar
← 1758Kóngur allra líf vill lengja1759 →Kóngur að Skúla enn skildingum lumar