Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1758
1758
1758

Hörmangara og Hastfer báða

Hljóðbrot0:00

Lag (Eg hef svo margan morgun vaknað) SSB 81b

Lag Syngur lóa í laufgum mó – Bj.Þ. 869

HHörmangara og Hastfer báðahöldum til jafns við versta þrjótvið Mangið laus, en lengi kláða-lúsinni máttum stríða' í mótkartöflur, salat, kál, gulrót,kom hann svo með í þokkabót.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hörmangarafautum fáttfyrir- verður gefiðtil þeirra hugsa bændur bágtog bjóða ekki í nefið. .

Ekki fæst hér ull í sokkútlit sýnist bændum ljóttekki knýja konur rokkkláðinn tærir mönnum þrótt.

Glúmur Gylfason · 1758

Heimildir og samhengi

Hörmangarar látnir hætta verslun 1758 sem þeir byrjuðu 1743og fengið hefur verst orð með Íslendingum.
Frá 1752 til 1757 voru samfelld harðindi. Annálar segja árferði gott 1758, en þó deyr fólk af hungri í Vestmannaeyjum skv. Ketilsstaðaannál, en viðnámsþróttur lítill orðinn eftir næringarskort á liðnum árum.

Kartöflur fyrst ræktaðar á Íslandi 1756. Það gerir Fridrich Wilhelm Hastfer barón og tókst líka að rækta grænmeti á Bessastöðum.
Það tók landsmenn öld eða aldir að læra átið og kváðu skop um þá er neyttu sama fóðurs og fénaðurinn.
Í bókinni Áraskip, 2. útg. 1964, bls. 83, lýsir Jóhann Bárðarson fæðuvali um aldamótin 1900 í Bolungarvík: ,,Úr jurtaríkinu aðeins brauð nefnt, og kartöflur sáust aldrei".

Á bls. 54 í Ritsafni Eyjólfs Guðmundssonar er staðfest að jarðarávextir hafi fyrst verið á borðum í Mýrdal að heitið geti eftir 1860-70.

Ágúst Jónson á Hofi lýsir í ævisögu I. hluta, bls. 59, að heimkominn frá búnaðarnámi hjá Sigurði Sigurðssyni á Hólum 1912 hafi hann byrjað kartöflurækt og lánaðist vel: ,,Lítil trú var á kartöflurækt meðal bænda. ...Raunar voru kartöflur þá enn í litlum metum sem mannafæða".

H. Laxness, Brekkukotsannáll, bls. 205: ,,Er ekki ósköp lítið um kjötmat í Danmörku herra doktor? Ég hef heyrt sagt að aumíngja fólkið lifi þar mest á káli og baunum".

Í bókinni Aldnir hafa orðið, útg. 1982, segist Þorsteinn Stefánsson frá Rauðhólum á bls. 141, hafa 1921, þá 17 ára, þá á ferðalagi í Loðmundarfirði, fyrst séð teknar upp kartöflur.

Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur greinir frá því í bók sinni, Leitin að Klaustrunum, bls. 448, að þegar Skriðuklaustur var grafið upp árin 2000 til 2012 hafi sést að þar á fyrri helmingi 16. aldar, hafi á borðum verið næpur, ferskt grænmeti og evrópsk villiepli.
Spila:

Vefursonichits.com (opnast í nýjum flipa)

Vigfús Guðmundsson, Oddi, bls. 89: ,,1754 skipað Friðrik V. svo fyrir að byggðir skyldu kálgarðar og ræktaðar garðjurtir á hverju býli er væri 10 hndr. eða meira hér á Suðurlandi. Garðyrkjufræðingur var sendur og matjurtafræið ókeypis. Sýslumenn og prestar áttu að sjá um úthlutun fræsins, einnig að örva og styðja framkvæmdir. ...Margir gerðu það líka af hlýðni einungis, en engum áhuga fyrir matardrýgindum eða heilsubót". Nefnir Vigfús til dæmis Oddaprestinn Gísla Snorrason Jónssonar Magnússonar - þ.e., Jón sá var bróðir Árna prófessors (1731). Og tilfærir bréf sr. Gísla sem segist ,,sældra meira til að lifa eftir Hoystbydende Ordes, en til að hafa þar af Domestivers glaðan barka (svo!) til viðtöku."

Íslenskar æviskrár, I, 230 segja sr. Björn Jónsson ,,undarlegan í háttum og matarræði". Sr. Ágúst Sigurðsson útskýrir það í Fornum frægðarsetrum, IV, 55, að hafi etið grænmeti og því hrakist (einelti?) frá Eyjafirði 1860. Hann bar nafn móðurbróður föður síns, garðræktarfrömuðarins sr. Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal.

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Kláðans fyrra varð vart 1761 og kom með síðari hrútasendingum frá Skotlandi, en Hastfer byrjaði fyrst að flytja inn hrúta 1756.
2002 vannst loks sigur á síðari kláðanum að sögn Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis, sjá 1858.

Sjá enn fremur um káðann 1619.

Vefurislenskt.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1758

  • Löngum var um fortíð fróð
  • Kóngur allra líf vill lengja
← 1757Þá kónglegir náttúruskoðarar skyldu1758 →Löngum var um fortíð fróð