Befalar kóngur kúrantmynt
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Befalar kóngur kúrantmyntkunnum á það giskaað það verði illa kynntennþá viljum fiska.
Heimildir og samhengi
Saga frá Skagfirðingum I, 83:
,,Á þeim missirum kom courantsgjald fyrst hingað í land, en það létust þá margir menn ekki mega reikna".
,,1753 var kúrant ríkisdalur algengasti gjaldmiðillinn bæði í Danmörk og Noregi og þá var ákveðið að einungis mætti nota þá mynt í viðskiptum við Íslendinga ef um peningaviðskipti væri að ræða". (Berglind Jóna Jónsdóttir).
1763 horfið frá og peningaviðskipti aðeins í harðæri, þegar Ísland hefði engar vörur að bjóða. Kaupmenn vildu nefnilega og þurftu fisk og kjöt upp í sína viðskiptasamninga. (Lovsamling for Island 3, 477).
Smjör, fiskur, skyr og tólg voru algengastir gjaldmiðla innanlands.
Séra Snorri Björnsson á Húsafelli orti:
Íslands góði ábati
af Innréttingum hygg ég sé
kom úr Fransós kláði á fé
Courant mynt fyrir Specie.