Halldór betri byrjar naut
Lag Sigga litla systir mín
Halldór betri byrjar nautog bjóst til vetrardvalaren þola hlaut er Þóra hnautþað sem blauður hjalar.
Heimkoma Dóra dróst, varð sein,dyggðar brustu skorður,Þóra var kona þeygi einþegar hún kom norður.
Mörgum er við hrösun hættholds þá kenna brímabiskupsfrúar barnið fættborið fyrir tíma.
Heimildir og samhengi
Dóri: Halldór Brynjólfsson (1692-1752) prófastur Staðastað, komst utan ári fyrr en Ólafur Gíslason, biskupskandidat til Skálholts. Halldór vígður biskup til Hóla í Vorrar Frúar kirkju á boðunardegi Maríu, 25. mars, en frú hans, Þóra, sem var ekki með í för, ól barn á jólum.
Annáll V, Íslands Árbók, tilfærir eftirfarandi á bls. 16:
Biskupsfrúin barnið átti á Hólum
bar það til á annan dag í jólum
Síra Halldór sagður var
sannur faðir að barni þar
og þarf ei par
að undrast um þó ekki með hún gengi
eins og aðrar lengi.
Frá Halldóri og Þóru er komið margt hinna merkustu manna fyrr og síðar, t.d. bæði biskup og forsætisráðherra.