Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1747
1747
1747

Víst í biskups virðugt starf

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

VVíst í biskups virðugt starfviljum enga dónaÓlafur brást ei að þá svarfembættinu að þjónaoft í skugga annars hvarfog því gerum skónaað burðast þætti bágt með arfBrynjólfs, Þórðar, Jóna.

Glúmur Gylfason · 1747

Heimildir og samhengi

L. Harboe réði biskupsvali beggja stóla sem lausir urðu 1742 – 3. Ekki þótti um auðugan garð að gresja meðal geistlegra utan Finns Jónssonar í Reykholti. Að hann varð ekki fyrir valinu þá, hefur verið umhugsunarefni og það tvennt nefnt til að ekki var hann heittrúarmaður talinn (píetisti) eins og Harboe, og hitt, að hann hafði íslenska kirkjusögu í smíðum og kann Harboe hafa kosið að sjá því verki lokið og ekki viljað glepja um fyrir Finni á þessu stigi verksins.
Til Skálholts valdi Harboe þá ósigldan prest, frænda Jóns Thorchilius, samverkamanns síns í Íslandsdvölinni, Ólaf Gíslason (1691-1753) prófast í Odda, sem sóttist þó ekki eftir embættinu.

Í ritinu ,,Sæmdarmenn, út. 2001 af Hugvísindastofnun, ritar Sverrir Jakobsson pistilinn ,,Upphefð að utan".
Þar koma fram þau sannindi að leiðin til virðingar liggur oftar en ekki um útlönd, hirðmennsku, suðurgöngur, háskóladvöl, dýrar gjafir þegnar af konungum og erlend skartklæði. Ekkert af þessu átti við Ólaf biskup Gíslason.

Biskupsfrú Ólafs var Margrét, dóttir sr. Jakobs á Kálfafellsstað, Bjarnasonar prests og skálds á Þingmúla, Gissurarsonar. En Bjarni prestur var dóttursonur Einars Sigurðssonar skálds og prófasts í Eydölum eystra.
(Sr. Einar Jónsson: Ættir Austfirðinga).

Téðir biskupar: Brynjólfur Sveinsson, Þórður Þorláksson, Jón Vídalín, Jón Árnason.

Myndir

Einnig frá árinu 1747

  • Prestar mátu prófast slys
  • Jón frá Dresa dæmdur slapp
← 1747Prestar mátu prófast slys1747 →Jón frá Dresa dæmdur slapp