Þá stiptamtmaður fyrstur fór
Lag Veik er mundin opin undin - Bj.Þ. 915
Þá stiptamtmaður fyrstur fórað finna landann,allir kenndu í einum kórOddi vandann
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Stam. Gyldenlöve kom aldrei til Íslands. Eftirmaður hans, Peter Raben, komst til Hafnarfjarðar en ekki til þings vegna gigtarkasts.
Erindi hans var að kynna sér ástandið í ljósi þess sem ritað er um 1719.
Það eitt hefði nægt til að fæla lm. Odd Sigurðsson frá að mæta stiftamtmanni, vel vitandi hverju honum væri í eyru hvíslað.
Jón Aðils segir að þeir Raben og am. Fuhrmann hafi hvorki viljað né getað leyst Odd frá embættum með geðþóttaákvörun eins og Oddur beitti Pál Vídalín. Sá tími var liðinn. (1662). Áþreifanleg brot þurfti til og um þau sá Oddur sjálfur og var reyndar búinn að því á Stapa fyrr um vorið, en það var yfirtaka og meðferð hans á dánarbúi undirkaupmanns þar.