Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1717
1717
1717

Kaupmaður þóttist klækjum beittur:

Hljóðbrot0:00

Lag Ég hef svo margan morgun vaknað (SSB 81b)

KKaupmaður þóttist klækjum beittur:,,Klaga eg bæði vil og skalþví mér nú þykir Þórður breytturog þrjótur Jón í HítardalHrappseyjar-Benna' í bann ég lessem brást mér líkt og Einarsnes".

Glúmur Gylfason · 1717

Heimildir og samhengi

Ólafsvíkurkaupmaður kannaði hverjir hefðu keypt fisk beint af útgerð.
Taldi skylt að hann væri milliliður. Gerði rekistefnu, en fjöldinn slíkur að ekki varð við ráðið, en stærstu kaupendurnir fengu að heyra það. Þeir voru:
Benedikt b. Hrappsey (1658-1746), yngstur 30 barna Brokeyjar-Jóns Péturssonar (1604) og dó 162 árum eftir að faðir hans fæddist - en Bogi prentsmiðjueigandi í Hrappsey var sonur Benedikts (1773);
Mynd Mats Vibe Lund frá Hrappsey:
https://mats.photoshelter.com/image/I0000HQYxGRzB.3Q

Þórður (1672-1720) próf. Staðarstað, sonur Bauka-Jóns Vigfússonar, Hólabiskups;

Jón (1665-1736) prf. og fræðimaður í Hítardal, Halldórsson og Hólmfríðar Hannesdóttur prófastamóður frá Kolsholti, Flóa (1664);

Jón yngri, sm. í Einarsnesi (~1649-1718) sonur Sigurðar lm. Jónssonar (1670, 1677).

Myndir

Einnig frá árinu 1717

  • Guðríður Ormsdóttir ógift dó
← 1716Vogs- í ósum vissi gerst1717 →Guðríður Ormsdóttir ógift dó