Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1713
1713
1713

Ei fannst Páli að því gaman

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í Draumalandi

Lag Einn var að smíða ausutetur

Á Alþingi:

EEi fannst Páli að því gamanað eiga að víkja úr dómi,,en Oddur sló forakt að öllu saman”og uppkvað háum rómi:,,óvirðing við yfirrétteigi kunnum líða”ef værir ekki af æðri stéttætti þig að hýða.

Oddi taum- og tangarhalditókst á Páli ná.,,Þó að lengi í móinn maldimiskunn skal ei sjá”

Glúmur Gylfason · 1713

Heimildir og samhengi

Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.

Það gekk eftir, að Oddur lét til leiðast að víkja Páli úr lögmannsembætti á alþingi 1713.
Það varð eftir að Páll neitaði að víkja úr lögmannssæti í lögréttu þar sem mál gegn honum skyldu tekin fyrir.
Var látið heita að honum væri vikið frá fyrir óvirðingu við yfirréttinn þar sem hann hvorki vildi mæta þar sjálfur né senda annan í sinn stað og væri undir ákæru sem snertu virðingu hans. Páll mótmælti jafnt ákærendum sem dómendum, ,,en Oddur sló forakt við því öllu saman”, segir Jón Grunnvíkingur í ævisögu Páls, bls. LIV. (Jón Aðils: O. Sig. bls. 71).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Á þessum tíma voru ekki allir jafnir fyrir lögunum sbr. Gunnar Karlsson, Inngangur að miðöldum, 67:
,,Á miðöldum skiptist samfélagið í þrjár stéttir: klerka, aðal og almúga ...meðlimir þeirra höfðu ekki sama rétt gagnvart lögum. Það var gróf skerðing á mannréttindum að koma fram við klerk eða aðalsmann eins og bónda.
Stundum var almúganum raunar skipt í tvo flokka, bændur og borgara. Öll er þessi skipting miðuð við karla, en konur hafa ...talist til sömu stéttar og eiginmenn þeirra og/eða feður".

Der Spiegel Gesichte 1. hefti 2021, bls. 16 telur að í kjölfar frönsku byltingarinnar 1789 hafi stéttaskiptingin farið að riðlast, t.d. með tilkomu borgarastéttar og iðnbyltingar. Eftir það fara loks allir að verða jafnir fyrir lögunum, fyrst í Frakklandi, þá Belgíu og nær til þýskra 1831. Önnur kynslóð stúlkna þaðan frá áræddi með tilstyrk karla að krefjast menntunar og atkvæðisréttar fyrir dætur sínar og tók um eina öld.

Myndir

Einnig frá árinu 1713

  • Ólyginn hefur Oddi sagt
  • Odd er besótti biskupinn
← 1713Ólyginn hefur Oddi sagt1713 →Odd er besótti biskupinn