Um Torfadóttur takst á
Lag Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858
Um Torfadóttur takst átveir í Skálholtsskólalögmannsson sín meira máá maga spratt upp bóla.
Heimildir og samhengi
Tveir skólapiltar í Skálholti tókust á um Ragnheiði (~1651-1712) dóttur Torfa próf. í Gaulverjabæ, Jónssonar lrm. Núpi, Gissurarsonar. Jón faðir Torfa var hálfbróðir Brynjólfs Skálholtsbiskups.
Ragnheiður var í Skálholti til náms í kvenlegum listum.
Sagnabrot Helga í Hólum, Sunnlenska bókaútgáfan 2009, fjalla um mál R. Torfadóttur, bls. 91. Úrdráttur:
Ragnheiður varð til þrætu þeim Lofti dómkirkjupresti Jósepssyni og Jóni Sigurðssyni.
Flog nokkur og andvökur komu þá að Jóni.
Hugðu menn þegar væri af galdri og eignuðu Lofti og Skafta bróður hans, sem var skólasveinn á staðnum. Höfðu þeir hótað Jóni nokkuð svo og sagði Jón að prestur hefði fengið sér stafi nokkra.
Loftur var settur frá embætti og varð að fara frá Skálholti svo og bróðir hans, Skafti.
Þeir bræður voru synir séra Jóseps sterka Skaftasonar á Ólafsvöllum, en Kristín móðir Jóseps var laundóttir Odds biskups. Stærðina hefur a.m.k. Jósep erft frá Oddi, en það var hann sem gekk með járnkarl í hendi á botni Hvítár hjá Þengilseyri til Skálholts undir íshroða svo sem Þorsteinn Erlingsson orti um:
,,Þá stendur Jósep sterki á Ólafsvöllum
í stuttri hempu sem er allt of víð.
Hann syngur hæst og auk þess best af öllum
og óð í gaddi Hvítá forðum tíð..."
Ólánið elti Loft allt til elli, en prestaskortur eftir bóluna 1707 varð til þess að hann fékk sitt fyrra embætti aftur síðustu starfsárin.
Ef til vill söng hann í Tungunum: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Kynni Jóns og Ragnheiðar báru forboðinn ávöxt og tók Brynjólfur biskup ekki í mál að þau fengju að giftast og máttu bíða þar til hann féll frá 1675.
Jóni lögmannssyni, Sigurðar Jónssonar, var vísað úr skóla en fékk stúlkunnar að Brynjólfi látnum, 1676.
Loftur Guttormsson - í Ráðstefnuriti ii Íslenska söguþingsins 1997, bls. 151: ,, ... algengasta sakarefnið í íslenskum galdramálum er meðferð rúna og galdrastafa, sem menn beittu annaðhvort sér til verndar eða til þess að vinna nágrönnum sínum mein ... rúnir og ritningar á blöð og spjöld eða í kver ... áttu að hafa áhrif á t.d. fiskigengd, skepnuhöld eða gengi í ástum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jón gerði sér Ragnheiði ekki einhlíta:MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Íslenskar æviskrár geta 12 barna þeirra og þriggja launbarna Jóns.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hér mun koma við sögu mikilhæfur sonur Skafta, Þorleifur officialis og fósturfaðir Skúla fógeta. 1735. Sjá enn fremur 1661.
(Sagnabrot Helga í Hólum, Sunnlenska bókaútgáfan 2009).