Í Bræðratungu tómleg rekkja
Lag (Ég hef svo margan morgun vaknað) SSB 81
Í Bræðratungu tómleg rekkjatekinn á braut er húsbóndinnþar fyrir Helga, Hákonar ekkjaheldur þó fram með búskapinnmeð dætrunum þar dvaldi kyrren dóu' út afkomendurnir.
Heimildir og samhengi
+ sm. Hákon Gíslason í Bræðratungu, f. 1614, kona: Helga Magnúsdóttir lm. Björnssonar og Guðrúnar Gísladóttur lm. Þórðarsonar.
Þrjár dætur þeirra Hákonar og Helgu komust upp:
Jarþrúður í Bræðratungu, fyrri kona Magnúsar jungkæra Sigurðssonar, er komu ekki upp börnum.
Elín, átti sr. Guðbrand Jónsson í Vatnsfirði, en þeirra 5 börn komu engum börnum upp og endaði arfur þeirrar sem síðast dó, Kristínar d. 1733, fyrst hjá móðursysturinni, Sigríði, sem líka lést 1733, féllu eignirnar þá til einkasonar Sigríðar, fv. lm., Odds Sigurðssonar, sem lést þess vegna ríkur 1741 eftir að hafa um dagana sóað miklum arfi. (1733).
Þriðja dóttirin, fyrrnefnd Sigríður, giftist sr. Sigurði á Staðarstað Sigurðssyni eldra Oddssonar biskups. Þau foreldrar fyrrnefnds Odds lm., sem var ókv. og bl.
Eftir Jóni Espólín hefur Gils Guðmundsson í Frá ystu nesjum VI, 87: ,,Þegar Vigfús Jónsson (bauka) hélt frá Leirá til Vatnsfjarðar 1709 að sækja Kristínu Guðbrandsdóttur, brúði sína, var fylgdarmaður hans Jón Eyjólfsson, b. Ási, Melasveit. Hann spurðist fyrir um og rannsakaði rústir Vatnsfjarðarkirkju þeirrar miklu sem Björn, síðar hirðstjóri Þorleifsson, drepinn 1467, lét flytja heila utanlands frá og þýskan mann, reisa 1452 ásamt Sigvalda langalíf Gunnarssyni.
Þeir höfðu markað hæð sína á ,,forkirkjustaf": Þjóðverjinn 4 álnir, Sigvaldi nær 5 álnir".
Alin skv. Jónsbók þá: 47,7 cm: 5 álnir ~230,5 cm.
Sigvaldi var föðurafi Gissurar Einarssonar, fyrsta lútherska biskupsins, sem „...var manna hæstur, nær því sem faðir hans“, segir Espólín. (Íslendingabók).
Jóhann Svarfdælingur Pétursson var 2,25 m.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)