Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1650
1650
1650

Ekkjur presta eitt ár fá

Hljóðbrot0:00

Lag Gnauðar mér um grátna kinn - Bj.Þ. 838

EEkkjur presta eitt ár fáábúð þeirra garðaáður búi brugðu þábúið var að jarða.

Glúmur Gylfason · 1650

Heimildir og samhengi

Alþingisbók, bls. 261: Kóngsbréf um náðarár prestsekkna 3. maí 1650.
Lovsamling for Island I, bls. 234-235.

Þess skal gætt, að í kaþólsku, þ.e., fyrir 1541 (1551) voru - tæknilegta séð - engar prestekkjur til og ekki þar til lútherskir prestar tóku að falla frá.

Óljóst hvort Guðríður Símonardóttir hefur notið þeirrar náðar sem getur í erindinu, þar sem séra Hallgrímur Pétursson var sjúkur og gegndi ekki embættinu síðustu æviárin.
Guðríður varð prestsekkja 1674, en séra Hallgrímur sagði af sér holdsveikur 1670.

Á þessu tók konungstilskipun 5. júní 1750 að túlkun Hæstaréttar 1866, sem lagði þann skilning í tilskipunina, að allar prestsekkjur, þ.e., líka ekkjur aðstoðarpresta og uppgjafapresta, ættu rétt á eftirlaunum, en Landsyfirdómur, klofinn þó, með Þórð Jónasson í minnihluta, hafði komist að annarri niðurstöðu. (Andvari IV. árg., bls. 170). Sjá hér: HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Karl Sigurbjörnsson, biskup, Helgur seinn, 326: ,,Það var Guðríður sem sat að síðustu við dánarbeð þjóðskáldsins og skrifaði upp andlátssálmana (Steinunnar, dóttur þeirra), þær óviðjafnanlegu perlur sem kynslóðunum urðu líkn og svölun í sjúkdómum og sorg. Guðríður, sem hefur verið svo afflutt, uppnefnd og rægð í þjóðsögum og munnmælum hins dómharða íslenska almannaróms, henni eigum við mikla þökk að gjalda." (1637).

Íslenskar æviskrár 1, 243: ,,Björn Pálsson (1791-1846) prestur Þingvöllum, fékk frá 1845 30 rd. eftirlaun árlega úr konungsféhirzlu og ekkja hans eftir hann 20 rd. árlega". Álykta má að sé undantekning en ekki regla.

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurmannlif.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1650

  • Aldrei getum fundið frið
← 1650Aldrei getum fundið frið1651 →Að Saurbæjarpresti berast bönd