Arngríms Kristján fjórði fékk
Lag Ærnar mínar lágu í laut - Bj.Þ. 883
Arngríms Kristján fjórði fékkfylgd í annað seturer Skotti í þeirra skotti hékkskrekktist sankti Pétur.
Heimildir og samhengi
Hengdur í Reiðskörðum við Rauðsdal á Barðaströnd Sveinn Skotti, sonur Axlar-Bjarnar (sjá 1596, 1646 );
Vefurafangar.com (opnast í nýjum flipa)
+Arngrímur lærði Jónsson. (1597).
+ Christian IV. Hægra augað missti hann í sjóorrustu við Svía 1644.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
1596, sama árið og Kristján IV. gerðist myndugur og tók konungdóm 19 ára, var faðir Sveins skotta, Axlar-Björn, hálshöggvinn skv. dómi, en konu hans hlíft þar sem hún var þá vanfær af Sveini.
Ofmælt kann vera í erindinu, að Sveinn skotti hafi komist að Gullna-hliðinu því að reimt var lengi talið í Reiðskörðum, en Sveinn skotti var þriðji brotamaðurinn sem þar var hengdur. Þar fór sér og hesti sínum að voða 1779 séra Gunnlaugur, ættfaðir Briemanna.