Selárdalsskúta fór á flot
Lag Biskups hef ég beðið með raun - Bj.Þ. 904
Selárdalsskúta fór á flotog fyllti seglin byreftirleikur enginn - slot -um aldir stóðum kyrr.
Heimildir og samhengi
Einar Bogason í Frá ystu nesjum V, bls. 146: ,,Í Prestaævum yfir Selárdalspresta segir Sighvatur Grímsson, sagnfræðingur, að séra Páll Björnsson hafi fengið sér haffæra skútu þegar hann var nýkominn að Selárdal og var sá fyrsti Íslendingur sem hélt úti þilskipi til flutninga og fiskveiða.
Hann var sjálfur skipstjóri á skútunni og sigldi henni á sumrin út á rúmsjó og ,,hlóð þá oft skútuna af besta fiski á fáum dögum, þegar aðrir urðu varla varir innfjarða.
Séra Páll Björnsson, prófastur í Selárdal, verður því að teljast réttnefndur faðir þilskipaútgerðarinnar á Íslandi".
Næstu skútur koma til sögunnar um aldamótin 1800. Þær gerðu þá út Ólafur Thorlacius frá Bíldudal og Bjarni riddari Sívertsen., Hafnarfirði.
Selárdalur, mynd Mats Vibe Lund: