Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1642
1642
1642

Oddur samdi sálma og lög

Hljóðbrot0:00

Lag Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881

OOddur samdi sálma og lögsat á Reynivöllumöðrum kunni fleiri fögen flóðið olli spjöllum.

Glúmur Gylfason · 1642

Heimildir og samhengi

Þrjár skriður féllu á Reynivelli í Kjós á 17. öld: 1642, drápust 13 naut, 1671,1699, dóu 7 menn.

Skarðsárannáll I, 267: ,,Þann 20. Februarii (1642) hljóp snjóflóð á Reynivelli í Kjós sem burttók hey mestöll úr garðinum og braut hlöðuna og fjósið og drap 13 naut en tvö komust af og bar grjót á túnin og skemmdi þau”.

Sr. Oddur Oddsson (~1565-1649) á Reynivöllum ,,talaði mörg tungumál" segir Fitjaannáll, lærði læknislist af erlendum manni í Skálholtsskóla (enskum segir Jón Þ. Þór, bls. 115 í Sögu Grindavíkur I) og samdi lækningabók og ritaði um grös og rím, en einstakt að hann samdi líkega lög við eigin sálmatexta - hvort tveggja undir kalvínskum áhrifum.

Dæmi þeirra á hljómdiski með Barbörukórnum undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar í útsetningu Smára Ólasonar.

Vefurhljodsafn.is (opnast í nýjum flipa)

Heimildir Smári Ólason, Ísl. æviskrár og Saga Íslendinga V, 380, P. E. Ól.

Skjalutgafa.ni.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1642

  • Fjölmenna til messu má
← 1641Kætast Skál- og Kols- nú holt1642 →Fjölmenna til messu má