Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1640
1640
1640

Foroðning kóngs að ekki hækki

Hljóðbrot0:00

Lag Langt fyrir utan ystu skóga

FForoðning kóngs að ekki hækkieignamennirnir leigurnar.Hugsar víst að hungruðum fækki.En hvað verður þá um eigurnar?

Glúmur Gylfason · 1640

Heimildir og samhengi

Skarðsárannáll I, 263 getur um enn eitt bréf kóngs til höfuðsmanns og alþingis - nú samið og sent að beiðni Guðmundar Hákonarsonar, klausturhaldara á Þingeyrum - um að leigur skuli ekki hækka.

Guðrún Ása Grímsdóttir, Grunnvíkingabók I, bls. 19: ,,...fram eftir öldum hafa landsdrottnar búið fjarri ...og leigur og landskuldir goldist ...í búsafurðum og sjávarafla...jarðir oftast leigðar til skamms tíma, framtíð leiguliða var því ávallt ótrygg ...en landeigendur ávöxtuðu fé sitt í fjarlægð með því að kaupa fleiri jarðir sem kyrkti umbótavilja þeirra sem leigðu þær; hér var enn járnöld þegar 20. öld gekk í garð”.

Jón H. Þorbergsson rekur í Ævidögum, bls. 162 feril leiguliða sem svo seint sem frá árinu 1878 mátti flytjast 7 sinnum á næstu 28 árum á milli jarða. Og þá er komin 20. öld!
Kannski var séra Sigvaldi ekki sá versti?

Jarðakaup voru oftast örugg fjárfesting er skilaði allt að 16% vöxtum. Fór enda svo að auðmenn neituðu jafnan að hætta fé sínu í verslunarþátttöku (1670 og 1680 og 1759) nema með þeim hætti að birgja sig upp að hausti á betri kjörum, hundraðskaupi, og selja dýrt að vetri þegar kaupmenn voru fjarri. Lögrétta bannaði kaupmönnum vetursetu og gátu þá lögréttumenn sjálfir sem og auðmenn prangað með brennivín og síðar með sykur og kaffi.
Kaupm. Trellund afsagði hundraðskaupið 1658.
Framanritað á þó ekki við Brynjólf Sveinsson og Skúla Magnússon, fógeta, sem hvor á sínum tíma mæltu með verslunarþátttöku þegar eftir var leitað og Eggert Hannesson, Staðarhóls-Páll Jónsson og Guðbrandur biskup Þorláksson lögðu í verslun.
(1576, 1581).

16% vextirnir eru nefndir á bls. 134 í Nýrri Íslandssögu Björns Þorsteinssonar.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1640

  • Tveggja ára Guð er gjafi
← 1640Tveggja ára Guð er gjafi1641 →Hvítra- nýr er hvala vandi