Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1634
1634
1634

Bræðratungu skrugga skemmdi

Hljóðbrot0:00

Lag Ástarfaðir, himinhæða

BBræðratungu skrugga skemmdiskaða stórum olli og sorgVesturjótland vatnsflóð hremmdiverst var það í Lukkuborg.

Glúmur Gylfason · 1634

Heimildir og samhengi

Fitjaannáll II, 127: ,,Þann 13. Januarii laust reiðarslag eður skrugga í bæjardyrnar í Bræðratungu inn um portið, braut það til skemmda mjög ...og gerði þar mikinn skaða ...sumir sögðu til 50 hundr.
Þar hrukku upp hurðir, undan þil, brotnuðu sundur kistur ...á þessu ári var það mikla vatnsflóð í Vestursjónum, svo í Glückstad og þar nálægt dóu 6123 manneskjur. Það flóð hafði komið um nótt”.

Verra flóðs og meira mannfalls af þess völdum er getið á sömu slóðum 1717 í 2. bindi annála, bls. 401.

14. desemberWikiwand (opnast í nýjum flipa) 1287: Grandi milli NorðursjávarWikiwand (opnast í nýjum flipa) og grunns stöðuvatnsWikiwand (opnast í nýjum flipa) í HollandiWikiwand (opnast í nýjum flipa) gaf sig og olli fimmta stærsta flóðiWikiwand (opnast í nýjum flipa) sögunnar. 50.000 manns létu lífið en flóðið braut líka hafinu leið að AmsterdamWikiwand (opnast í nýjum flipa) sem eftir það gat þróast sem hafnarborg. (Tekið af Wikiwand).

Íslenskir annálar láta sig þessar slóðir varða, en á þessum tíma eru Ísland og Noregur enn í ríkissambandi við hertogadæmin sunnan við núverandi landamæri Danmerkur og Þýskalands. Þaðan komu líka samskot sem tekin voru við kirkjur í konungdæminu þegar illa áraði á Íslandi.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1634

  • Hollendingar fiskinn fá
← 1634Hollendingar fiskinn fá1635 →Úrslit mála ei skal tryggja