,,Enginn skyldi signa sig”
Lag Sigga litla, systir mín
E,,nginn skyldi signa sig”sagði Kristján fjórðifólkið við það fór á svigflest á meðan tórði.
Heimildir og samhengi
Kóngur sendir forordningu sem þó verður ekki lesin upp á þingi og fjallar um bann við hvítagaldri, þ.m.t. signingar – eftir hverri Jón lærði Guðmundsson engu að síður var dæmdur 1631, en hún mun hafa verið lesin á Alþingi 1630.
Í Ráðstefnuriti ii, Íslenska söguþingsins 1997 á bls. 150, nefnir Loftur Guttormsson m.a. J. Dybvad (d.1617) og J. Brochmand (d. 1652), ráðgjafa Krisjáns 4., sem lögðu hvítagaldur - kristilegan galdur sem kirkjan hfði umborið - að jöfnu við svartagaldur. ,,Það var í þessum anda sem Kristján konungjur 4. sem var einlægur galdratrúarmaður, herti mjög eldri refsiákvæði um galdrafólk. Samkvæmt tilskipun hans 1617, sem var kunngerð opinberlega hér á landi 1630, lá útlegð við hvítalgaldri".
Á signingabanninu herti Oddur biskup Einarsson með Kýraugastaðadómi 1592, sem útrýma skyldi ýmsum venjum úr kaþólsum sið. Sjá Einar Laxness, Íslands saga II, 80 - Kýraugastaðadómur.
Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 252: ,,...var trú manna á mátt hans (hvítagaldurs) almenn á þessum öldum ...hafði í sér vísi til lækninga ...bægja frá illu. Svartigaldur þókti aftur í móti hinn hryllilegasti glæpur bæði í kaþólskri og lútherskri kristni ...fólginn í því að gera mönnum mein með tilstyrk fjandans og djöfla hans".
Trúarbyltingin um miðja 16. öld var róttækari á meginlandinu, og 200 árum síðar, um og eftir miðja 18. öld, stóðu Harboe og Landsnefndin fyrri í ströngu við að banna messur á virkum dögum og dýrlinga.
Þá hafði orðið önnur trúarbylting í evrópu, píetisminn, sem byrjaði með þýskum nokkru eftir 30ára stríðið (1618-1648).
Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 248: ,,Það má þykja vafasamt að hræring sú sem barst hingað með Harboe á 18. öld hafi nokkurn tíma að ráði fest rætur með Íslendingum eða rofið að nokkru stefnu rétttrúnaðarins".
Önnur er skoðun dr. Stefáns Einarssonar bókmenntafræðings sem reiknar Grím meðhjálpara hjá Jóni Thoroddsen píetista og vitnar í Matthías Jochumsson á bls. 20 í Skáldaþingi. Í Skírni 1918 giski séra Matthías á að tveir náungar sem hann þekkti á Breiðafirði, Brokeyjar-Vigfús og Arneyjar-Sveinn, ,,hafi búið að reitum píetismans, sem víða lifði hjá alþýðu fram á byrjun 19. aldar". En nefndir Breiðfirðingar vitnuðu í tíma og ótíma í þá Davíð, Salómon og Sýrak, segi séra Matthías.
Ekki var blekið Páls heldur þornað þegar heittrúarhreyfingar bárust hingað, t.d. frá Ameríku, sem andsvar við raunsæisstefnunni og nýguðfræðinni. (1742).