Þess nú gerist brautin bein
Lag Við stallinn Kristí
Þess nú gerist brautin beinbiskups- er telst af ættar greinen það er nú hinna þrautarmeinað þekkja hann ei sem bæri;.; ei ókeypis neinn Oddur tók í læri ;.;
Heimildir og samhengi
Einar Laxness, Íslands saga II, 124: ,,Á biskupsárum Odds Einarssonar í Skálholti, 1589-1630, skipaði hann helst í embætti menn sér náskylda eða tengda, án mikils lærdóms; nutu þá ýmsir ættingjar hans forgangs til náms nema greitt væri fyrir með jarðeignum".
Skálholtsbiskup, Oddur Einarsson, má á þessu ári byrja að taka til varna vegna einkavinavæðingar í embættaveitingum, og þeirra kjara sem honum ótengdir máttu hlýta ef þeir vildu senda syni sína í Skálholtsskóla: lélegrar kennslu illa lærðs skólameistara (Gísla bróður hans), slæms fæðis í skólanum, færri nemenda en skylt var, illrar meðferðar og álagna á landseta stólsins, og vandlega sneitt hjá prestsetrum ættmenna hans þegar koma skyldi fyrir uppgjafaprestum á bestu brauðum, en þar sátu einmitt þeir.
P. E. Ól., Saga Íslendinga V, 71: ,,Ýmislegt var hæft í þeim áburði, sem hann þykist hafa verið borinn, og er þessi vörn hans því heldur vafasöm". Sjá 1589, 1590 og 1618.
Og á bls. 220-221 sést að 7 voru Skálholtsrektorar í tíð Odds. Þar af voru 6 skyldir honum í 1. eða 2. lið. Sá eini óskyldi, Jón Gizurarson, fékk stöðuna ,,að óvild Odds" og mátti þola það sem nú yrði kallað einelti biskups; skipti þá á embætti við Hólarektor, Vigfús Gíslason frá Bræðratungu, á dánarári Odds, 1630. Gísli Oddsson, verðandi biskup, 1632, hafði orðið að standa upp frá rektorsembætti fyrir Jóni Gizurarsyni. Missætti Skálholts- og Bræðratungufeðga er alþekkt og gæti koma Vigfúsar til Skálholtsskóla með þessum hætti verið (ein) ástæða þess. Um það þegar Oddur kom Gísla ekki til Valþjófsstaðar er fjallað 1618.