Hróður Íslands lægst þá laut
Lag Dvel ég í draumalandi
Hróður Íslands lægst þá lautlægra Hrunsins ránumþegar blessað barnið skautBaskana á hnjánum.Annan höfðu syðra siðsegir þulur fróðiskipbrotsmanna lúið liðlögðu í sæng hjá fljóði.
Heimildir og samhengi
Ari Magnússon (1571-1652) sm. í Ögri fær Magnúsi, f. 1599, syni sínum byssu og lætur hann skjóta vopnlausa skipbrotsmenn frá Baskalandi.
Samtals 31 drepinn með framhlaðningi.
Unglingar alltaf fljótari að tileinka sér nýja tækni.
Fitjaannáll II, 99: ,,Þá brotnuðu 3 spönsk skip í Strandasýslu hvaraf kom það Spanskaslag að íslenskir slógu í hel af þeim spönsku 31...”
Lýður Björnsson kynnti sér ritaðar samtímaheimildir um Baska á Vestfjörðum og birti niðurstöðuna í Vestanglæður 2004, bls. 131 - sr. Ólafur Jónsson á Söndum í Dýrafirði, ber Böskum ekki vel söguna í bundnu máli, en Jón lærði Guðmundsson, stendur með þeim – e.t.v. umfram það sem ætla mætti af öðrum heimildum.
Lýður: ,,...eru lýsingar á þeim atburði ekki Ara og hans mönnum til sóma”.
Á fyrirlestri Vitafélagsins 4.10. 2017 staðfesti ræðumaður, kona úr Suðursveit, nefnda skaftfellska lífgunaraðferð, og vissi hana enn gilda í tíð langömmu sinnar svo sem franskt útlit ömmunnar bar vott um sem og augu og yfirbragð fyrirlesarans sjálfs að eigin mati.
Að því kom að Frakkar, sem veiddu við Ísland í þrjár aldir frá 1614, reistu hér sjúkraús í lok 19. aldar. Þau urðu þrjú auk þess sem læknar voru um borð í fylgdarskipum með veiðiflotanum.
Fyrir kom að þeir önnuðust Íslendinga og björguðu lífum.
Áhrifamikla sögu af slíku segir Viktoría Bjarnadóttir á bls. 38 - 41 í ,,Vökustundir að vestan".
Vefurbaskasetur.is (opnast í nýjum flipa)