Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1604
1604
1604

Mættur er Brokeyjarjarlinn, Jón,

Hljóðbrot0:00

Lag Hani, krummi / Austankaldinn

MMættur er Brokeyjarjarlinn, Jón,jeg trúi ensku talifái hann komið á fálka sjónfær honum breytt í dali.

Á níunda tugnum náði hanní nítján ára sprundást hjá ungu fljóði fanner fæddi þrísvar kund.

Glúmur Gylfason · 1604

Heimildir og samhengi

Ísl. æviskrár: ,,Jón Pétursson (~1584-1667 eða 1672) fór til Englands 1591 með enskum skipherra, vini föður síns, Péturs Péturssonar í Arnarfirði, og vandist sjóferðum og kaupskap. Kom aftur til landsins í kaupskaparerindum 1602"
Ekki er ljóst hvenær Jón er alkominn frá Englandi, en sett hér 1604.
JP, nefndur Brokeyjar-Jón. Auk þess að vera smiður þá var hann fálkafangari og hreinsaði fyrstur æðardún og seldi til Englands.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Auk annarra barna eignaðist Jón Pétursson 27 börn með þremur eiginkonum, það síðasta er hann var 82ja ára.
Meðal barnanna voru Benedikt í Hrappsey (1717) og Þorsteinn, f. ~1670, faðir Galdra-Lofts.

Sé Jón fæddur 1584 líða 162 ár þar til sonur hans, Benedikt í Hrappsey deyr, 1746, og veit Hannes Þorsteinsson, ritstjóri og fræðimaður, ekki lengri líftíma feðga.
Í 2. sæti gætu verið Vigfús Guðmundsson, höfundur Sögu Eyrarbakka, sá sem hér er oft vitnað til, d. 1952, og faðir hans, Guðmundur ríki Brynjólfsson á Keldum f. 1794.

(Ísl. æviskrár; Feðgaævir eftir Boga Benediktsson; Aths. HÞ um aldur feðganna er við Vallaannál, I, bls. 527).

Íslendingabók: ,,Jón Jónsson, bóndi á Reykjum í Reykjahverfi um tíma til 1774 og síðar á Ási í Kelduhverfi. Nefndur „ríki“. „Var hár maður og þrekinn og atgervismaður mikill, skýr og stilltur."
Jón þennan segir séra Ágúst Sigurðsson í Forn frægðarsetur III. bls. 62, vera fæddan 1704, en skv. Ísl.bók f. um 1705 en dáinn 20. des. 1799. Þrígiftur kvænist hann 86 ára gamall 3ju konu sinni, 19 ára stúlku og átti með henni 3 börn. Sonur af fyrra hjónabandi var Þorsteinn, faðir séra Jóns, sem Reykjahlíðarætt yngri er talin frá.
67 ár á milli hjóna og eiga afkomendur.
Bjóða aðrir betur?

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1604

  • Á Eyrum berja bændur á
← 1604Á Eyrum berja bændur á1605 →Ofan á hönd Jóns hellan féll