Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1863
1863
1863

Miðöldum er mál að linni

Hljóðbrot0:00

Lag Tíu litlir negrastrákar

MMiðöldum er mál að linnitil mikils er að vinnaþá Íslendingar öðru sinniAmeríku finna.

Glúmur Gylfason · 1863

Heimildir og samhengi

Miðaldalok miðast oftast við það, þegar Kolumbus fann Ameríku 1492.
Íslendingar fundu Vínland að nýju 1855 er til Utah komu ein hjón. Og 1857 flúðu þangað frá Vestmannaeyjum 12 ofsóttir mormónar. (1857, 1851).

Vefuraman.com (opnast í nýjum flipa)

En 1863 fóru fjórir Þingeyingar til Brasilíu og settust þar að. Einn þeirra, Jónas Hallgrímsson, er á meðfylgjandi mynd. Hann lést ytra 1870 sem með öðru varð til þess að Jakob Hálfdanarson hætti við Brasilíuför en varð fyrsti kaupfélagsstjóri KÞ 1882.
1873 fluttu svo enn 33 Þingeyingar til Brasilíu og ,,lifðu við þægilegar kringumstæður en ekki ríkidæmi", segir fyrrnefndur Jakob á bls. 40 í sjálfsævisögu.
Ekki fylgdi fjölskylda fyrrnefnds Jónasar honum til Suður-Ameríku, en einn sonur hans var Hermann, búfræðingur og alþingismaður Húnvetninga 1900-1908.

Tilvitnun: Brasilíufararnir eftir Jóhann Magnús Bjarnason.

Íslenskar æviskrár V, bls. 399: ,,Jón Jónsson (1829-20. jan. 1866). Lærði ensku af lestri bóka (ritaði ævisögu sína á ensku og birtist í tímariti ytra 1877), Bjóst til Brasilíufarar vorið 1865, seldi búslóð sína og fluttist til Húsavíkur, en skip það er útvega átti til ferðarinnar kom ekki og farareyrir eyddist að mestu við dvölina á Húsavík ...dó næsta vetur".

Kristleifur Þorsteinsson segir frá því í Úr byggðum Borgarfjarðar II, 34, að Símon nokkur, Norðlendingur, (Kristleif minnti Skagfirðingur) hafi komið við á Húsafelli á leið sinni til Brasilíu. ,,Honum varð svo skrafdrjúgt um það gósenland sem hann var að flytja til, að ekki var hægt að sveigja tal hans að neinu öðru. Sagði m.a., að sá sem aðeins nennti að rétta frá sér hendurnar fengi þær fullar af rúsínum, gráfíkjum og alls konar aldinum. Gullstykkin lægju í sandinum og þyrfti lítið annað en leggja sig niður til að moka auðæfunum upp".

Á bls. 239 í bókinni ,,Frá Íslandi til Brasilíu", útg. 1938, segir að án árangurs hafi verið spurst fyrir um þennan Símon hjá skagfirskum öldungum og sá möguleiki nefndur að þarna hafir verið förumaður sem vildi skemmta gestgjafa sínum að fornum hætti.

Stjórnvöld í Brasilíu vildu á þessum tíma greiða hálft fargjald allt að 150 íslenskra innflytjenda frá Hamborg til Brasilíu, þeirra sem voru á aldrinum 12 til 50 ára. Yngri sigldu frítt en eldri greiddu allan kostnað. Þeir sem voru á góðum aldri fengu land keypt hjá stjórninni á góðum kjörum ásamt útsæði fyrsta árið, bráðabirgðahúsi, einum stórgrip, 2ur hænum og einum hana - segir í sömu bók, bls. 234.

Þetta er borgin sem þeir nafnar, Jónas Bárðdal og Jónas Hallgrímsson stðnæmdust í að lokum:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Vefurgihub.org (opnast í nýjum flipa)

Vefurthediplomaticinsight.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Enn gerast Ískendingar Brasilíufarar:
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Átakanleg og ekki hlutlaus er lýsing Baldvins Bárðdal á ætlaðri Brasilíuför með foreldrum sínum með skipinu sem aldrei kom til Akureyrar.
Hún er í Sunnudagsblaði Alþýðublaðsins 1938 og í Gesti 5, bls. 207.

Myndir

Einnig frá árinu 1863

  • Vistarbandsins bila tök
  • Vestra sagt að bræður berjist
← 1863Vistarbandsins bila tök1863 →Vestra sagt að bræður berjist